Eða væri kannski betra að tala um einn
hjólanda og tvo
hjólanda.
Þar sem ég sit fyrir framan sjónvarpið, eins og stundum kemur nú fyrir, streymir til mín auglýsing frá samgöngustofu um öryggi þeirra sem kjósa að fara ferða sinna á reiðhjólum. Þetta er talsvert löng aulýsing, sem er ætlað að sýna það helsta sem gott er að hafa í huga þegar maður á leið um götur borgarinnar á farartæki á hjólum.
Ekki skal hér gert lítið úr mikilvægi þess boðskapar sem auglýsingin felur í sér, en vandi minn er sá, að ég tilheyri þeim undarlega og minnkandi hópi fólks (sjálfsagt fyrir aldurs sakir) sem missir æ meir af boðskapnum sem borinn er á borð, vegna þess hve óaðlaðandi eða jafnvel bara kengvitlaust málfarið á boðskapnum er.
Sannarlega þarf ég að eiga við sjálfan mig í því efni.
Áður en lengra er haldið vil ég geta þess, að ég leitaði að mynd af
hjólanda, en fann ekki. Hinsvegar var nóg af myndum til að hinum mikla vef, af
hjólöndum.
Sé vilji til þess að fara þá leið sem birtist í ágætri auglýsingunni, opnast heill heimur af möguleikum til orðasmíða. Það væri þó kannski rétt að ákveða hvort á að byggja á orðmyndinni
önd eða
andi - það er nefnilega erfitt að þurfa stöðugt að hafa í huga svo ólík fyrirbæri sem önd og anda þegar viðkomandi orðmyndir koma fyrir bæði í eintölu og fleirtölu.
Orðmyndun af því tagi sem hér er um að ræða getur vissulega leyst þann vanda sem uppi er varðandi ýmis kynjuð orð sem fólk hefur verið að agnúast út í.
Hér koma svo nokkur dæmi:
Þingmaður -
þingandi (þingandar)/
þingönd (þingendur)
Ráðherra -
ráðandi (ráðandar)/
ráðönd (ráðendur)
Kennari -
kennandi (kennandar)/
kennönd (kennendur)
Reiðmaður -
ríðandi (ríðandar)/
ríðönd (ríðendur)
Flugþjónn -
fljúgandi (flljúgandar)/
fljúgönd (fljúgendur)
Dæmi um þessi orð í setningu gæti verið:
Þingendurnar kölluðu eftir því að
ráðöndin gæfi skýringar á yfirlýsingunni.
Þingandarnir kölluðu eftir því að
ráðandinn gæfi skýringar á yfirlýsingunni.
Mikilvægt er að ríðandinn hafi áhuga og gaman af samskiptum sínum við hestinn, þyki vænt um hann og umgangist hann sem jafningja og vin.Mikilvægt er að ríðöndin hafi áhuga og gaman af samskiptum sínum við hestinn, þyki vænt um hann og umgangist hann sem jafningja og vin.
Ekki meira um þetta mál. Bara halda áfram að beita hörkunni við að láta þetta yfir sig ganga.