Elín Jóhannsdóttir með börn sín,f.v. Guðnýju, Elínu Ástu og Siggeir. Móðir hennar, Elín Magnúsdóttir standandi. |
Þegar Guðný var tveggja ára fæddist foreldrum hennar önnur dóttir, Elín Ásta, síðan kom Siggeir í heiminn 1925, og loks Sigurður 1928. Það segir nú fátt af fyrstu árum í lífi systkinanna þarna til að byrja með. Sigurður er sá sem enn er til frásagnar og eðlilega er minni hans um það sem gerðist á Baugsstöðum áður en hann fæddist, harla gloppótt, þó svo hann sé eins og alfræðiorðabók um fólkið og lífið á Baugsstöðum og í nágrenninu, að ýmsu öðru leyti.
Hann gat sagt mér það, af skólagöngu þeirra systkina fyrstu árin, að hann sótti um tíma farskóla í Gaulverjabæ og um tíma var ráðinn, að undirlagi Magnúsar Hannessonar í Hólum, kennari sem kom að Baugsstöðum og kenndi Sigga, Helga Ívarssyni, fóstursyni Magnúsar og Hinrik Ólafssyni í austurbænum. Helgi og Hinrik voru ári yngri en Siggi. Að sögn Sigga taldi Magnús í Hólum farskólann í Gaulverjabæ vera hálfgerðan vandræðastað fyrir fósturson sinn réði þess vegna kennara sem kom frá Eyrarbakka og kenndi þremenningunum á Baugsstöðum. Siggi segir skólagöngu sína hafa verið um það bil eitt ár alls.
Bréf Guðnýjar til systur sinnar 1932 (12 ára) |
Af systkinum Guðnýjar er það að segja, að systir hennar, Elín Ásta, lést skömmu fyrir 11 ára afmælið sitt*. Bræður hennar, Siggeir (Geiri) (1925-2001) og Sigurður (Siggi) (1928 -) ólust upp á Baugsstöðum og tóku þar við búi foreldra sinna í fyllingu tímans. Það sagði Siggi mér, að eftir að Páll afi hætti að stunda sjóinn (1958) réru bræðurnir (eða bara Geiri) í um tvö ár, en þá var báturinn seldur, hvort sem það var vegna þessað Páll vildi ekki að bræðurnir héldu áfram að stunda róðra frá Loftsstaðasandi, þar sem það var ekki hættulaust (segir Siggi), eða vegna þess að aflinn hafði farið mjög minnkandi..
Guðný og Ingunn Ósk |
Sem fyrr segir, varð það úr að Guðný hleypti heimdraganum ásamt vinkonu sinni, Ingunni Ósk frá Tóftum (Tóttum) í Stokkseyrarhreppi. Þær fengu námsvist í Húsmæðraskólanum á Hallormsstað haustið 1937 og þar var Guðný tvo vetur hjá þeim Sigrúnu P. Blöndal og Benedikt Blöndal, sem fóstruðu þann sem síðan átti eftir að verða lífsförunauturinn. Sennilega mun ég koma að því síðar.
Systurnar Kristín, Guðlaug og Elín Jóhannsdætur. |
Páll og Elín á Baugsstöðum |
Baugsstaðasystkinin á fermingardegi Sigga (1942?) Siggeir, Guðný og Sigurður. |
Systkinin frá Baugsstöðum og Tóftum. Aftast Ingunn Ósk og Guðný, miðja Einar og Geiri, fremst Siggi. |
Siggi á Baugsstöðum. Hann segir þetta vera fyrstu myndina sem var tekin af honum. |
Börn Siggeirs Guðmundssonar og Kristínar Jóhannsdóttur. Aftari röð f.v. Ásmundur, Sigurður og Jóhann. Fyrir framan Sigurlaug og Guðmundur Siggeir. |