Ætli það sé ekki tvennt, aðallega, sem hefur orðið til þess undanfarna daga, að ómeðvitað hefur hugurinn leitað til baka og upp hafa rifjast atburðir og minningar sem tengjast lífinu í Laugarási undanfarin 50+ ár.
Annarsvegar setti fyrrverandi heimasæta í Heiðmörk upp sérstaka síðu á hinni alræmdu fésbók, sem tileinkuð er Laugarásbúum fyrr og nú, hinsvegar birtist sparisjóðsbankastjórinn á Selfossi inn á téða fésbók með látum, en við áttum okkur nokkuð langa og mikilvæga sögu saman hér í Laugarási.
Svo margir áratugir sem hér um ræðir, hljóta, eðli málsins samkvæmt, að skilja eftir sitthvað í hugum þess fólks sem fæddist hér og ólst upp. Minn hugur er búinn að fljúga yfir sviðið; elsta minningin líklegast frá því um 5 ára aldurinn og sú yngsta til atburða síðustu ára. Hér má sjá, á þessu stigi, nokkrar fyrirsagnir, í æsifréttastíl frá þessum tíma. Engu lofa ég um að framhald verði á og ekki mun ég skýra hverju fyrirsagnirnar lýsa, en vonast til að einhverjir með svipaða reynslu geti fundið út hvað um er að ræða.
Horfði ofan í bullandi hverinn
Barni rænt
Farið mannavillt á versta tíma
Óhefðbundin ræktun í kjallaranum
Grýla með kerti á kræklóttu nefi.
Kusa gerir árás.
Fékk botnlangakast messu.
Of miklu eytt í messuvín
Skotinn niður þrisvar
Ástin Gypsí eða Landróver?
'Nú skal ég skal drepa þig, helvítið þitt!'
Pikkólína tekin í notkun
Hestur í búri
Tankurinn var ekki tómur
Hent út úr skólabílnum
Talað við ókunnugt fólk
Truntan bakkaði bara
Halinn slitnaði af
Vikan á loftinu
Að skjóta hænur
Göngustígur klýfur
VAT69 úr kaupstaðarferð
Charger tekinn til kostanna
'Ætlarðu að leyfa barninu að keyra?!!?'
Grillaði rollu á Skeiðunum
Og annar hundur til
Heppin að lifa
Ég er búinn að komast að því að ég gæti haldið lengi áfram svona, en það gengur hreint ekki. Þessi Laugarásár, með 10 ára hléi frá fæðingu, hafa greinilega verið þrungin æsilegum atburðum og minnisstæðum.
Laugarás er ljúfur staður
löngum hef ég vitað það.
Því neitar ekki nokkur maður,
nem'ann búi á öðrum stað.