Það var komið myrkur þegar Kúbuferðahópurinn sneri til baka til Havana eftir langan og viðburðaríkan dag. Ef skynsemin hefði ráðið, hefði þetta kvöld átt að líða í rólegheitum, með VR á náttborðinu og upprifjun á deginum í höfðinu og það var líka vilji ótilgreinds hluta þremenninganna sem hér um ræðir. Bara slappa af og slaka á. Annar, einnig ótilgreindur hluti hópsins var ekki búinn að gleyma ríkispizzustaðnum Prado y Neptuno, sem áður hefur komið við sögu og þeim fyrirætlunum sem þá voru uppi um að fara ekki frá Havana fyrr en slíkri pizzu hefði verið sporðrennt. Á endanum, hafði þessi hluti hópsins betur og því var ákveðið að leggja í þá 20 mínútna gönguferð sem áður hafði verð mæld.
Ég ætla nú að hætta að tala um þennan hóp í þriðju persónu og bara segja frá því sem gerðist á tiltölulega persónulegan hátt, í þeirri von að ég teljist ekki ganga of langt. Þessi umræddi hópur var, auk mín, skipaður þeim fD og fR, en þær hafa áður komið við sögu í þessum pistlum. Við erum öll komin mismunandi langt inn á sjötugsaldurinn, en ég minnist þess enn frá æskuárum mínum hvað mér fannst slíkt fólk vera orðið gamalt - hrumt og átti erfitt með gang, talaði hægt og hreyfði sig hægt, undirlagt af gigtarsjúkdómum og átti ekki langt eftir, augljóslega. Ekki þarf ég að taka það fram, að viðhorf mín til þessa hafa breyst umtalsvert síðan, enda fyrri skoðunin hreinir aldursfordómar, sem ekki eiga að líðast.
Hófst nú gangan, en þar sem við höfðum áður farið þessa leið og hún hafði verið algerlega vandræðalaus létum við vera að taka með okkur götukort, þrátt fyrir að við vissum ekki fyrir víst hvað torgið (Parque Central) héti né nafnið á veitingahúsinu (Prado y Neptuno), en þetta má hvorttveggja sjá á kortinu sem hér fylgir, merkt með Y. Leiðin þarna á milli er merkt með rauðri línu og endar í híbýlum okkar, sem ég merkti með X. Ég er reyndar ekkert viss um að við höfum búið á þessum stað, gæti verið einni götu nær eða fjær, sem segir margt um þá miður ábyrgu ákvörðun að leggja þarna af stað upp götuna Virtudes, í myrkri, kortlaus, en auðvitað alls ekki vitlaus - því dytti mér aldrei í hug að halda fram.
Þarna komum við út úr íbúðinni og ég taldi bara sjálfsagt, að leið okkar hæfist með því halda þá til hægri (blá brotin lína á kortinu). Þarna hefðu þær fD og fR átt að gefa skýrt til kynna efasemdir sínar um að þetta væri rétt ákvörðun, t.d. með því að segja sem svo: "Ertu viss um að við séum á réttri leið?" (Þrjú hjól undir bílnum, en áfram skröltum við þó, o.s.frv.). Nei, þær gerðu engar athugasemdir og gangan hófst, öruggum skrefum fólks sem vissi hvað það var að gera. Nú yrði stutt í ríkispizzuna, sko.
Það var hinsvegar ekki langt liðið á þssa göngu þegar ég sá birtast út úr myrkrinu, hús, sem lokaði götunni og sem sannarlega átti ekki að vera þarna. Það var eitthvað sem sagði mér þá að ekki væri allt eins og ætlað var. Ég hægði aðeins á mér í þeirri von að efasemdir mínar yrðu staðfestar, sem gerðist nú ekki strax, eiginlega ekki fyrr en ég orðaði þær. Við trúðum því ekki að svona gæti þetta verið. Það átti að vera öðruvísi. Þetta hafði nú ekki verið flókin leið þarna á milli.
Við afréðum að ganga götuna á enda og sjá hvað þar biði okkar, en auðvitað var það bara endinn á götunni. Þá fórum við að snúast lítillega hvert um annað, í algerri óvissu um hvað bragðs skyldi taka.
Eins og alltaf á þessum götum var þarna annað fólk og það var ákveðið að reyna að spyrja til vegar. Maður á miðjum aldri varð fyrsta fórnarlambið. Bæði var það, að hann talaði nánast enga ensku og við enga spænsku og við mundum ekki hvað torgið sem við vorum að fara á, heitir. Var það Plaza Central, Central Plaza, það var allavega eitthvað Central. Maðurinn vildi samt allt fyrir okkur gera og bauðst til að ganga með okkur áleiðis, en það leystist einhvern veginn upp.
Þá bar að konu eina, einnig á miðjum aldri, ef til vill. Það var sama með tungumálasamskipti okkar, en hún leiddi okkur inn á rétta braut varðandi nafnið á torginu, sem er Parque Central. Þar sem við vorum að "tala" við hana bar að mann, líklega milli tvítugs og þrítugs á einu af þessum þríhjólum sem er mjög algeng þarna á götunum og þá í hlutverki leiguhjóla, eða TAXA. Við ræddum málin stutta stund og þau reyndu að leiðbeina okkur, en það náðist ekki mikill skilningur úr því samtali. Það var þá sem ökumaður leiguhjólsins sagði okkur að setjast í hjólið og hann myndi fara með okkur. Þetta var hjól svipaðrar gerðar og sjá má hér efst, tvö frekar mjó sæti og gripurinn allur fremur veikbyggður.
"Are you sure? There are three of us?"
"Yes, yes, come, come, sit in".
Ekki neita ég því að það komu að minnsta kosti vöflur á mig. Hvernig átti maður að bregðast þarna við? Þetta var eiginlega dálítil klípa. Annarsvegar maður sem, sem örugglega veitti ekkert að pening, og var allur af vilja gerður til að hjálpa okkur að komast í pizzuna og hinsvegar hugmyndin um að við þrjú sem þarna vorum, settumst á þetta veikbyggða farartæki. Ég get alveg fjallað um það hvað við erum nú nett í vextinum og allt það, en læt það vera af augljósum ástæðum.
Það var um það bil þarna sem fR og fD misstu svalann (kúlið) eins og sagt er stundum. ( Ég tel mig hafa haldið mínum, en er reyndar ekki viss) Ég veit svo sem ekki fyrir víst hvað olli því að það gerðist, mögulega einhverskonar taugaveiklunarviðbrögð þarna úti á þessari illa lýstu götu, rammvillt og þurfa að taka ákvörðun um að setjast upp í þríhjól hjá einhverjum náunga sem mögulega gæti haft eitthvað misjafnt í hyggju.
Það er einnig mögulegt að þetta hafi tengst tilhugsuninni um það hvernig við þrjú áttum að geta komist fyrir á þessu þríhjóli. Ég bara veit þetta ekki og þær hafa ekki fjölyrt um það.
Svalinn lét á sjá allavega og við tók óstöðvandi hlátur, sem hélt áfram eftir að niðurstaða varð um að í þríhjólið reyndum við að troða okkur og fá flutning á torgið Parque Central, þar sem ríkispizzuveitingahúsið var.
Hann hélt áfram meðan fR settist í annað sætið og ég í hitt. Eftir þetta ríkti almenn kátína af einhverju tagi meðan fD brölti einnig inn, settist á annað læri mitt og hné, en tókst einnig að ná taki á veikbyggðum þakbita, þegar ökumaðurinn kom sér síðastur fyrir og hóf að taka farartækið til kostanna, þegar tók að marra og braka í farkostinum, þegar keðjan fór af, ökumaðurinn sagði "sorry" stökk af og skellti henni á aftur í dimmu stræti í gömlu Havana, þegar ökumaðurinn beygði sig til hliðar til að líta eftir afturdekkinu sem hélt okkur fD uppi.
Það dró hinsvegar úr henni eftir því sem lengra leið og við fundum næstum áþreifanlega hve miklum átökum blessaður ökumaðurinn þurfti að beita, en talsverður hluti leiðarinnar var á fótinn.
Hún vék loks fyrir viðringu fyrir þessari hetju sem loksins stöðvaði og benti: "Parque Central". Og viti menn, þarna blasti torgið við. Ökumaðurinn steig að hjólinu og við á eftir. Hann horfði á okkur aðframkominn af mæði og í ljósunm frá torginu blikaði á svitadropana á efri vör hans.
Hversdagshetja.
Hann fékk aukagreiðslu og handaband í þakklætisskyni fyrir allt það sem hann hafði þarna á sig lagt fyrir okkur túristaræflana.
Jú, upphófust hláturrokur, stundum upp úr eins manns hljóði, þegar tilhugsunin kallaði fram myndir af einstökum þáttum þessa, sem átti að verða 20 mínútna göngutúr eftir götu sem ber heitð Virtudes.
Þarna var leiðin orðin greið á Prado y Neptuno, ríkisrekinn veitingastað sem sérhæfði sig í pizzum. Við þennan stað og pizzurnar þar hafði hugur hluta hópsins dvalið samfellt í þrjá daga. Nú var komið að því.
Við vorum reyndar næstum ein á þessum, svolítið sovéska stað. Sérstakur dyravörður tók á móti okkur, okkur vísað til sætis, boðið að drekka o.s.frv., pizzur valdar eftir smekk. Eftir mjög hæfilegan tíma komu þær - snilldar pizzur og vel þess virði að bíða eftir þeim í nokkra daga og leggja á sig Havanaævintýri til að fá að njóta þeirra. Undur góðar, bara.
Við tókum góðan tíma í að klára þennan þátt kvöldsins, en þá hófst umræðan um heimferð. Ættum við að ganga í tuttugu mínútur eða taka Coco taxa. Nú var það ég, sem beðið hafði eftir ferð með slíku farartæki dögum saman, sem náði meirihluta og út héldum við á leigubílastæðið sem þarna var rétt hjá. Það voru Coko taxar í röðum. Völdum bara þann sem næstur var. Bílstjórinn ýtti honum á góðan stað og allt klárt til að stíga um borð. Viti menn, rifjaðist ekki upp hluti hláturkastsins frá því fyrr um kvöldið og nú vegna þess, að mér var ætlað að brölta í miðsætið (en í Coco taxa eru nefnilega þrjú sæti). Þetta gerði ég með glans (þau einhverjir í hópnum hefðu jafnvel vonað eitthvað annað) og fylgdarkonurnar settustu sitthvorumegin við mig og allt róaðist og ferðin gat hafist.
Við vissum reyndar ekki heimilisfangið, en höfðum, sem betur fer tekið með okkur nafnspjald, sem dugði til þess að heim komumst við úr sallafínni ferð.
Þreyta dagsins tók nú aftur yfir eftir að adrenalínflæðið hafði fyrr um kvöldið fjarlægt það eins og dögg fyrir sólu. Nóttin tók okkur mjúklega í konunglegum húsakynnunum.
Það verður víst einn pistill enn ..........
Sýnir færslur með efnisorðinu Havana. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Havana. Sýna allar færslur
03 apríl, 2019
31 mars, 2019
Kúba: salsa, torg, bylting, bíltúr, listir, fullt af aksjón
![]() |
Öldugangur við Malecón |
Þetta var ágætur morgunn, með gönguferð niður að Malecón, götunni sem liggur þarna með sjónum og þar sem haföldur rísa fyrir utan til þess eins að kyssa sjóvarnargarðinn við götuna hraustlega og senda hvítan úða yfir umferðina sem þarna á leið um.
![]() |
Íþróttatími |
Eftir hádegið hófst síðan aldeilis fjölbreytt síðdegi sem náði langt fram á kvöld.
![]() |
Í húsi Fusters |
Fusterlandia
Fyrst lá leið okkar í Fusterlandia sem er heldur betur merkilegur staður að koma á. Þetta er heimili José Rodríguez Fuster (1946). Hús hans allt, allur garðurinn í kringum það og næsta nágrenni er eitt keramiklistaverk. Því verður ekki lýst með orðum, en ég læt bara myndir í staðinn, sem dæmi um umhverfið sem þarna blasti við.![]() |
Mynd Fusters í hverfinu þar sem hann býr. Þarna má þekkja þá félaga Fidel og Che. (símamynd) |
Sovéska/rússneska sendiráðið
![]() |
Rússneska sendiráðið (mynd af vef) |
Það vitum við öll að samskipti Kúbu við Sovétríkin voru náin á sínum tíma. Við vitum líka að samskipti Kúbu við Bandaríkin voru ekkert sérlega hlý, eins og nærri má geta.
Sovétmenn reistu veglegt sendiráð hjá þessari vinaþjóð í garði hinna frjálsu og hugrökku; ekki bara eitthvert hús heldur má með góðum vilja (sem ég, sakleysinginn, áttaði mig ekki á fyrr en fararstjórinn benti á það) líta á sem risavaxið "fokkjú" yfir hafið, en sendiráðið sendur einmitt þannig, að á milli þess og nágrannans í norðri er ekkert nema hafið. Hvað sem má segja um það, þá er þetta harla ósendiráðsleg sendiráðsbygging - líkist einna helst flugturni.
Plaza de la Revolución / Byltingartorgið
![]() |
Byltingartorgið (mynd af vef) |
72.000 fermetrar, hvorki meira né minna.
Ég minnist fréttamynda af Fidel Castro flytja óendanlega langar ræður á þessu torgi yfir þjóð sinni, og ekki síður heiminum öllum, því auðvitað var það stór hluti af leiknum.
![]() |
Tríóið á Byrltingartorginu, með Che Guevara í baksýn. |
Á yngri árum var mér fremur hlýtt til byltingarleiðtoga af þessu tagi: þeirra sem leiddu fólkið til byltingar gegn kapítalisma, arðráni og kúgun. Þessi neisti er enn í mér, en má vísast muna sinn fífil fegri. Kommúnisminn var og er falleg kenning um alræði öreiganna, en það er eins með hann og aðrar mannkynsfrelsandi kenningar, að mannskepnan býr ekki yfir þeim þroska að leyfa þeim að ganga upp.
Þær eru dæmdar til að leiða af sér eitthvað allt annað en til stóð í upphafi.
![]() |
Á byltingartoirginu. Þar sem rauði bletturinn er, stóð Castró þegar hann messaði yfir þjóð sinni og heimsbyggðinni. |
Ekki neita ég því, að það var meiri upplifun fyrir mig að koma á þetta torg en ég lét uppi. Kannski vegna þess að einhver hluti af manni er og verður alltaf nátengdur þeim árum þegar maður var að mótast sem manneskja; árunum milli tektar og tvítugs. Það sem á eftir kemur ævinnar er bara úrvinnsla úr því í ljósi aðstæðna hverju sinni. Þetta var djúpt (ef þú hefur ekki áttað þig á því ).
Hotel Naciónal
Þessi glæsibygging var opnuð 1930 þegar Kúba var einn helsti áfangastaður amerískra ferðamanna. Batista rændi völdum 1933 en ekki ætla ég að rekja þá sögu, nóg er nú skrifað hér samt. Í tengslum við valdaránið var umsátur um hótelið og á því dundi skothríð og sprenguárásir. Síðar, á bannárunum í Bandaríkjunum settist mafían þarna að og þar var haldin fræg ráðstefna mafíósanna: "The Havana Conference" sem gerð eru skil í mynd Coppola "The Godfather Part II".
Þetta er sem sagt sögufrægt hótel og ekki laust við að sagan snerti mann í húsakynnum þess.
![]() |
Í anddyri Hótels Naciónal (Þjóðarhótelsins) |
Bíltúrinn
![]() |
Tríóið í bíl sínum, ásamt bílstjóranum. |
Það var einhvernveginn alltaf ljóst, að í þessari ferð myndum við fara í bíltúr með áratuga gömlum amerískum köggum. Hvað var meira viðeigandi, en að bruna úr hlaði á Hótel Naciónal á einum slíkum?
Það varð sem sagt raunin. Það sama virtust langflestir í hópnum einnig hafa hugsað því bílarnir streymdu að hótelinu og upp í þá stigu langflestir Kúbuferða-langarnir. Við tók klukkutíma ferð um staði í borginni sem við höfðum ekki áður kíkt á.
![]() |
Prinsessurnar leggja í hann frá Hotel Naciónal. |
Í hlut okkar þriggja kom bíll sem var árgerð 1948 og sem hafði síðan (frá byltingu væntanlega) verið í geymslu, en gerður upp fyrir 10 árum og fékk eftir það, það hlutverk að aka svona túristum.
Það var ekki ég sem ákvað að setjast í framsætið; aðrar ákvarðanir urðu til þess. Mér var ætlað að eiga við bilstjórann, sem reyndist ekki afspyrnu sleipur í öðru tungumáli en sínu, sem var bara ágætt, enda ég svo sem enginn sérstakur áhugamaður um gamla bíla. Ég spurði hann þó aðeins og hann svaraði aðeins, milli þess sem hann þeytti yfir umhverfið miklum lúðrahljóm, sem olli því að við skríktum með einhverjum hætti í hvert sinn. Þetta var fyndið fyrst.
Þetta var hin skemmtilegasta ferð bara, en talsverð olíustybba var þó þarna í framsætinu, sem ég hygg að aftursætisfarþegarnir hafi ekki orðið varir við; þeir nutu þess bara að leika prinsessur. Bílferðinni lauk síðan við útidyrnar hjá okkur.
Fabrica de Arte Cubano
![]() |
FAC (mynd af vef) |
Ef einhver hefur ímyndað sér að eftir allt sem þessi dagur hafði fært hópnum, væri nóg komið og tími til að huga að draumnum um pizzuna, þá ímyndar hann sér vitleysu. Það var nefnilega heilmikið atriði eftir: út að borða í nútímalistarmiðstöðina Fabrica de Arte Cubano - FAC), þar sem gamalli verksmiðju hafði verið breytt í feikimikla listamiðstöð. Það var upplifun að koma á þennan stað. Fyrir utan var röð fólks en með okkur var farið sem VIP gesti þar sem við vorum leidd inn í sali undir vökulum augum tröllvaxinna öryggisvarða. Leiðin lá eftir rangölum þar til við komum að lokum í veitingasal sem var okkur einum ætlaður og greinilega byggður úr gámum af einhverju tagi, þaklausum.
Eftir ágæta máltíð gengum við um salina til að skoða verkin sem þarna voru sýnd og þau voru sannarlega með ýmsum hætti. Meðal annars var þarna að finna verkið sem ég set hér mynd af, til vinstri.
Rétt er að taka fram, að ég tók ekki með mér myndavél í þessa heimsókn, en náði mér í þessar á vefnum.
Ef ég á að segja eitthvað um gestina, sem ég ætla augljóslega að gera, þá voru þeir ekki af því tagi sem við höfðum aðallega umgengist í þessari ferð. Á sínum tíma hefðum við kallað þá "uppa" hérna á landinu bláa.
![]() |
Verk á FAC (mynd af vef) |
Rétt er að taka fram, að ég tók ekki með mér myndavél í þessa heimsókn, en náði mér í þessar á vefnum.
Ef ég á að segja eitthvað um gestina, sem ég ætla augljóslega að gera, þá voru þeir ekki af því tagi sem við höfðum aðallega umgengist í þessari ferð. Á sínum tíma hefðum við kallað þá "uppa" hérna á landinu bláa.
Við þrjú, ólíkt einhverjum öðrum úr hópnum, komumst síðan út án vandkvæða. Einhverjir lentu í brasi sem ég eiginlega ákveð að skauta framhjá, þó um hina ágætustu eftiráskemmtun hafi ugglaust verið að ræða hjá þeim.
Fyrir utan listamiðstöðina var svo komið með mig, eftir að hafa gengið hæð eftir hæð til listaverkaskoðunar, að ég þurfti nauðsynlega að tylla mér aðeins og sá ekki annað færi yil þess en skellinöðru sem lagt hafði verið fyrir utan. Í þann mund sem botn minn snerti sæti skellinöðrunnar, var engu líkara en einhverskonar hryðjuverkaárás hefði átt sér stað, Feikilegt sírenuvæl, sem ég áttaði mig fljótlega á, að kom frá skellinöðrunni, brast á. Fólk í nágrenninu snéri sér við, eða leit upp og starði á mig, sem hafði bara ætlað að hvíla lúin bein, en ekki stela skellinöðru. Ekki fer ég nú að útlista svipbrigðin sem við blöstu þarna í daufu skini götuljósanna, hvorki þeirra né mínum.
Enginn smá dagur og ekki stefndi í síðri dag daginn eftir, en þá skyldi lagt snemma af stað.
30 mars, 2019
Kúba: Qigong, Hemingway, örlög ráðin
![]() |
Qi Gong fyrir neðan svalirnar okkar |
Við götuna var einnig skóli og íþróttasalur barnanna var gatan, en henni var bara lokað fyrir umferð meðan íþróttirnar voru stundaðar. Það hefur líhlegast verið vegna þessarar notkunar á götunni sem hún var afar snyrtileg, en það sama verður vart sagt um aðrar götur í þessu hverfi.
Fyrsta daginn í Havana, miðvikudag, 6. mars, fór hópurinn með leiðsögn um gamla bæinn. Þangað var gengið sem leið lá, eins og gengur. Ég var með kort og reyndi af fremsta megni að fylgjast með hvar við vorum hverju sinni, sem gekk reyndar misvel, enda ekki mikið um kennileiti og götumerkingar ekki alltaf þar sem maður átti von á þeim. Ég var svona samviskusamur vegna þess að fyrir lá, að á ákveðnum tímapunkti stóð til að sleppa okkur lausum í gamla bænum og við myndum þurfa að koma okkur sjálf til baka.
![]() |
Ritvél Hemingway's á Hotel Ambos Mundos (mynd af vef þar sem égvar þarna að hugsa um annað en myndatökur). |
Það var gaman að koma á Hotel Ambos Mundos þar sem Ernest Hemingway dvaldi í herbergi 511 við skriftir á 4. áratugnum. Þarna lauk hann bókinni "Death in the Afternoon" 1932, og byrjaði á "New Green Hills of Africa" sem kom út 1935 og "To Have and Have Not" sem kom út 1937. Ég hefði gjarnan viljað að hann hefði skrifað þarna einhverja bók sem ég hef lesið eftir hann, en því var ekki að heilsa.
Inn á hótelið fórum við (hópurinn allur) og stefnan tekin upp á þak þess með lyftu, að sjálfsögðu, enda 6 hæða bygging og feikilega hátt til lofts á hverri hæð. Lyftan var ekki af nýjustu gerð, en lyftuvörður sá um hleðslu hennar, að loka rimladyrunum og setja af stað.
Það fór nú svo, að fyrsti hluti hópsins sem ætlaði upp reyndist of þungur (lyftuvörðurinn hafði bara talið fjöldann sem inn fór, en ekki tekið kílóin með í útreikningnum) og lyftan gaf upp öndina áður en hún fór af stað. Lyftuvörðurinn rak alla út, harla ókátur, lokaði lyftunni og gaf skýrt til kynna að við skyldum bara ganga upp, ellegar fara hvergi. Sex hæðir í kjölfar margra óþolandi hressra ferðafélaga, sem brostu meira að segja nokkrir þar sem þeir skokkuðu upp stigann eins og það væri fagnaðarefni að fá til þess tækifæri.
![]() |
Stiginn á Hotel Ambos Mundos |
Uppi var ágætt útsýni yfir borgina og ég ákvað að láta reyna á hvort andinn kæmi yfir mig - tók fram penna og minnisbók og byrjaði að skrifa. Hann kom ekki. Þarf sennilega meira til. Þetta varð útkoman, skrifuð undir áhrifum frá Ernest Hemingway, Nóbelsverðlaunahafanum, orðrétt:
"Á toppinn á hóteli þar sem Hemingway dvaldist. Biluð lyfta. Strembið".
Eftir hádegið tók við frelsi til athafna á eigin forsendum og við þrjú héldum út í óvissuna, stefndum þó á markað sem okkur hafði verið bent á. Fljótlega fór það svo, að fram komu mismunandi skoðanir á því hver væri leiðin að þessum markaði, en, eins og nærri má geta var það ég...........nei annars, betra að nefna það ekki. Markaðinn fundum við. Töldum að þarna hefði verið átt við stóran útimarkað eins og maður er vanur úr svona ferðum, en svo var nú hreint ekki. Þessi var innandyra og minnti helst á Landbúnaðarsýninguna í Laugardalshöll 1968 .
![]() |
Gengið eftir ströndinni eftir markaðinn. |
Við tók ganga eftir ströndinni og spenna fór vaxandi, enda engin vissa fyrir hendi um það hvort okkur tækist að finna rétta leið að götunni sem heitir Obispa. Eftir nokkrar krókaleiðir, og leiðbeiningar frá innfæddum fundum við torgið með styttunni af föður föðurlandsins honum Carlos Manuel de Céspedes. Það var nokkur léttir og spennan sem hafði verið að byggjast upp hvarf eins og dögg fyrir sólu.
Parque Central
Ekki segir frekar af ferðum okkar fyrr en við komum á Parque Central, en af því torgi liggur gatan Virtudes alla leið að næturstað okkar. Myndskeiðið sýnir þetta torg, en ég fann það á Youtube.
![]() |
Vegglist á Virtudes |
Þar með tel ég þennan dag afgreiddan.
![]() |
Þvottur á snúru á Virtudes. |
*Qi gong er hið minnsta 4000 ára gamlar kínverskar orkuæfingar sem sameina hreyfingu, öndun og einbeitingu (vitund). Þær voru upphaflega þróaðar af kínverskum læknum og Qi gong áhugamönnum. Þá og enn er þeim ætlað að lækna og koma í veg fyrir sjúkdóma.
Æfingarnar hafa um aldir verið í stöðugri þróun og menn hafa iðkað þær víða um heim. Hafa þær hjálpað ótal, ótal mörgum. Vestrænar vísindarannsóknir staðfesta meðal annars að iðkun Qi gong lækkar blóðþrýsting og hægir á öldrun líkamans.
(upplýsingar á Facebooksíðu)
29 mars, 2019
Kúba: næturstaður, snyrtingin og VR
![]() |
Örin bendir á dyrnar að híbýlum okkar í Havana. Íbúðin er á annarri hæð í þessum blágræna pastellit. |
Eftir að við höfðum brunað gegnum neðansjávargöngin og inn í borgina lá leiðin beint í gististaðina sem okkur voru ætlaðir, en þeir voru með svipuðum hætti og verið hafði í Casilda, nema þarna voru þeir allir við sömu gatnamótin í gamla bænum, í húsum sem eitt sinn hýstu betur stæða þegna Kúbu en nú.
Þar sem rútan var stöðvuð við gatnamót, inni í hverfinu í gamla bænum, voru gestgjafar okkar komnir til að taka á móti hópnum. Þeir tóku töskurnar okkar og fluttu upp í íbúðina, sem var á annarri hæð, í okkar tilfelli (þessara þriggja: ég, fD og fR).
![]() |
Tilraun til að ná mynd í herberginu. |
Þetta var dálítið konungleg upplifun, bæði með því að við þurftum ekki að snerta farangurinn fyrr enn upp í herberginu okkar og vegna þess að í þessari íbúð var afar hátt til lofts. Ég giska á að lofthæðin hafi verið einir 5-6 metrar. Ég freistaði þess að taka myndir sem eiga að sýna þetta.
Í íbúðinni voru þrjú stór herbergi í útleigu og gestgjafinn bjó þar einnig. Því miður talaði hún litla eða enga ensku svo samskipti við hana voru í heilmiklu lágmarki og nánast eins og hún vildi helst ekki vera neitt að reyna að spjalla. Aðbúnaðurinn allur var hinsvegar afskaplega góður, svo því sé nú haldið til haga.
Aðeins meira um herbergin.
Við fengum þarna ágætis herbergi, sem var að vísu gluggalaust, eins og herbergið sem kom í hlut fR. Það var gluggi á þriðja herberginu. Ég verð hinsvegar að segja það að gluggaleysið skipti engu máli, því þarna dvöldum við bara yfir blánóttina í ágætis rúmum.
Herbergi okkar og fR voru samliggjandi og fljótlega kom í ljós að eitthvað var óvenjulegt við snyrtinguna, en það var salerni og sturta í öllum herbergjunum, sem ekki höfðu verið þar þegar upprunalegir eigendur á 18.eða 19. öld bjuggu þarna, heldur sett upp þegar íbúðin var tekin í gegn vegna ferðaþjónustunnar. Það hefur tekið mig nokkra stund að finna réttu orðin til að lýsa samspili snyrtinganna tveggja, okkar fD annarsvegar og fR hinsvegar.
![]() |
Setustofa íbúðarinnar og það sést út á svalir. |
Á milli snyrtinganna var veggur, bara rétt eins og reikna hefði mátt með, utan það að hann var rétt rúmlega mannhæðar hár, en, eins og áður er getið, var lofthæðin í íbúðinni 5 - 6 metrar.
Ég neita því ekki, að ég skipulagði nokkuð verkefni mín á snyrtingunni út frá því hvar ég taldi fR vera stadda hverju sinni.
Allt fór þetta vel og ekkert okkar fékk sár á sálina af þessum sökum, í það minnsta.
![]() |
Dyrnar inn í herbergið okkar fD |
Við gengum frá okkur í þessum konunglegu híbýlum og svo brunaði hópurinn á veitingastað, þar sem snæddur var ágætur matur og VR* innbyrt af nokkrum krafti. Þriðja konan bættist þarna við sem borðfélagi okkar þriggja. Þar með voru þær orðnar þrjár sem reyndu að hafa stjórn á mér. Undir borðhaldinu varð ég fyrir nokkurri ágjöf, við og við, en stóð það allt af mér af sannri karlmennsku, eins og maður segir.
Þar sem hópurinn yfirgaf veitingastaðinn, belgsaddur, fór rafmagnið af bænum (allavega hluta hans) og raunar ekkert meira um það að segja. Rútan beið okkar og nótt í nýju rúmi eftir heilmikinn dag, tók okkur fagnandi.
*VR merkir Vítamín R, sem er sú skírskotun til þjóðardrykks Kúbverja sem fararstjórinn kenndi okkur að nota. Með tilvísun til yfirstandandi kjaraviðræðna kýs ég að notast við VR.
28 mars, 2019
Kúba: ljós á sögu, Bahía de Cochinos, hraðsólbað, ríkis...
Leiðin frá Casilda að Svínaflóa (Google maps) |
Svínaflói (Bahía de Cochinos)
Leið okkar lá með Svínaflóa, sem allir sem komnir eru til vits og ára eiga nú að kannast við. Guðni fararstjóri fjallaði um þá sögulegu viðburði sem þar áttu sér stað í apríl 1961, Svínaflóaárásina. Það kemur fyrir að fD vill halda því fram, að athyglisbrestur hrjái mig, sem auðvitað er ekki raunin, heldur er skýringuna á því að ég missi stundum af einhverju sem sagt er, vegna þess að hugurinn reikar víða. Þarna, sem sagt fjallaði Guðni um Svínaflóaárásina sem Che hafði stýrt. Nú vissi ég auðvitað að Che Guevara stýrði ekki þessari árás, en lét gott heita. Spurði Guðna þó nánar út í þetta síðar í ferðinni og varð mér þar með til nokkurrar minnkunar. Í umfjöllun sinni hafði Guðni nefnilega greint frá því að CIA hafi staðið að árásinni, en ekki Che. Hljóðkerfi rútunnar er um að kenna að ég heyrði, ranglega auðvitað, CHE. Það má alveg halda því fram að framburðurinn sé ekki ólíkur.![]() |
Sigur við Svínaflóa (mynd af vef telesur) |
Ég læt hér fylgja stutta umfjöllun um innrásina af vef BBC, en þarna má lesa enn meira um hana og reyndar út um allt internetið, enda byltingin á Kúbu einn að stóru atburðunum á 20. öld.:
Shortly before midnight on 16 April 1961, a group of some 1,500 Cuban exiles trained and financed by the CIA launched an ill-fated invasion of Cuba from the sea in the Bay of Pigs.
The plan was to overthrow Fidel Castro and his revolution.
Instead, it turned into a humiliating defeat which pushed Cuba firmly into the arms of the Soviet Union and has soured US-Cuban relations to this day.
The Bay of Pigs is a large isolated inlet on Cuba's southern coast.
There is little here apart from mosquitoes and a crocodile-infested swamp.
The beach at Playa Giron, a village with a small airstrip at the mouth of the Bay of Pigs, was the invaders' primary target. (To this day, it is referred to in Cuba as the Playa Giron invasion.)
A simultaneous landing was planned near the village of Playa Larga, 35km away at the far end of the bay.
(vefur BBC: https://www.bbc.com/news/world-latin-america-13066561)Ég gæti vísast varpað hér inn miklu af efni um Svínaflóaárásina hér, en læt ykkur, lesendur góðir um að finna bara út úr því öllu saman sjálf, ef áhugi ykkar stendur til þess. Ég ætla hinsvegar að fjalla lítillega um Playa Girón í öðru samhengi, nefnilega sem viðkomustað hóps Kúbuferða sem kom við á leið til Havana.
Þarna á Playa Girón var afgirt svæði við ströndina. Þar beið okkar hádegisverður á ríkisreknum veitingastað, bara í góðu lagi, sólbað um stund á ströndinni þar sem innrásarher CIA hafði verið á ferð fyrir 58 árum, en verið gjörsigraður á þrem dögum af Castró og liðsmönnum hans.
Þetta var svæði þar sem allt var innifalið, stöndin og drykkir að vild (Cuba libre,Sex on the Beach og hvaðeina) og matur væntanlega einnig fyrir þá sem hann vildu. Ekki varð annað ráðið af biðröðinni við strandbarinn en að samkeppni væri nokkur í hópi okkar Íslendinganna milli sólbaða og barferða.
Verst hvað glösin voru lítil, en ströndin falleg.
Þetta var hressandi og ágæt um tveggja tíma áning á fögrum stað við Karíbahafið.
Svínaflói sýnist ekki stór á korti, en reynist bara engin smásmíði.
Svo var brunað til Havana.
![]() |
Kortið enn. Græna, brotna lína sýnir í stórum dráttum leiðna frá Casilda til Havana |
Það var ekið inn í Havana síðdegis. Mér fannst innreið okkar í þessa merku borg sérstöð að því leyti, aðþað var ekið ofan í göng undir Canal de Entrada og við hin enda ganganna vorum við bara allt í einu komin inn í borgina.
Þar með vorum við komin í næsta ævintýri þessarar góðu ferðar.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Bæði góður, en líka leiðinlegur.
Þ að er nú ekki vegna þess að ég hef ekkert við tímann að gera, nema finna eitthvað í lífinu til að fjargviðrast yfir, sem ég ákvað að reyna...

-
Það er ótvíræður kostur við þorrabót eldri borgara í Biskupstungum, að það er ekki boðið upp á dansiball með tilheyrandi hávaða þegar fól...
-
50 ára stúdentar, 2024 Maður áttar sig ekki endilega á því, meðan einhverjar aðstæður eru fyrir hendi, hvort þær hugsanlega muni skipta máli...
-
Við Jósefína kenndum saman í Reykholtsskóla við upphaf 9. áratugarins, þegar ég var að stíga fyrstu skref mín sem kennari og það gekk allave...