Það gerðist einu sinni, meðan enn gaus í E-jökli, að aska barst inn yfir Laugarás. FD var þá ekki í rónni fyrr en hún hafði verið hreinsuð af pallinum, svo hægt væri að bera á hann pallaolíu (ég) svona í tilefni vorkomunnar. Það hefur hinsvegar ekki unnist tími til verksins til þessa, vegna anna á öðrum vettvangi.
Eins og hendi væri veifað, löngu eftir meint goslok, skall á með regnblönduðu öskufalli hér í uppsveitum í dag. Það er engu líkara en maður sé að vinna með WORX í þröngu herbergi. Maður finnur fyrir öskunni í augum og munni, á lyklaborði tölvunnar, á gólfinu, á stýrinu - bara hreint allsstaðar hefur hún smeygt sér.
Ég er búinn að sjá ástandið undir Eyjafjöllum og ætla nú ekki að reyna að líkja þessu ræfilslega öskufalli við það. Hinsvegar leyfi ég mér að lýsa óánægju minni með þessa stöðu mála. Nú þarf aftur að skúra pallinn.