30 september, 2008
90/I
28 september, 2008
Grand finale
25 september, 2008
Tímamótatími
19 september, 2008
Aldurinn færist yfir
17 september, 2008
Kvatt
Ég leyfi mér að birta hér fréttatilkynningu vegna tónleika í Skálholtsdómkirkju laugardaginn 27. september, n.k. kl. 17.30.
--------------------------------------------------------------------
Kveðjutónleikar í Skálholtskirkju
Hilmar Örn Agnarsson organisti og kórstjóri kvaddur
Laugardaginn 27. september kl 17.30 verður haldin mikil tónlistarveisla í Skálholtskirkju. Hilmar Örn Agnarsson hefur nú látið af störfum sem organisti og kórstjóri í Skálholti eftir nær 20 ára farsælt starf og nú er komið að eftirminnilegri kveðjustund.
Á tónleikunum koma fram, undir stjórn Hilmars, félagar í þeim kórum, sem hann hefur stjórnað undanfarin ár, þ.e. Skálholtskórinn, Barna- og Kammerkór Biskupstungna og Kammerkór Suðurlands. Einnig fjöldi þekktra tónlistarmanna, einsöngvarar og hljóðfæraleikarar, sem tekið hafa þátt í tónleikum með kórum Hilmars. Má þar sérstaklega nefna Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, sem sungið hefur einsöng með kórunum innanlands sem utan, söngvarana Hrólf Sæmundsson, Margréti Stefánsdótttur og Maríönnu Másdóttur, sálmabandið Lux Terrae, Hjörleif Valsson konsertmeistara og hans lið, Jóhann I Stefánsson trompetleikara, svo nokkrir séu nefndir. Þá munu hinir ágætu organistar, Haukur Guðlaugsson, Steingrímur Þórhallsson og Guðjón Halldór Óskarsson leika á orgel kirkjunnar fyrir tónleikana, meðan gestir ganga til sætis.
Flytjendur munu allir sem einn leggja sitt af mörkum til að gleðja þá sem koma að hlusta, gleðja hvert annað og ekki síst söngstjórann, sinn góða vin og baráttumann fyrir sönguppeldi og söngmenningu í sveitum landsins. Megi honum farnast vel á nýjum starfsvettvangi.
Aðstandendur tónleikanna óska þess, að þeir sem tök hafa á, láti upphæð sem svarar aðgangseyri að tónleikunum, (t.d. kr 2000,-) í söfnunarkassa í andyri kirkjunnar og mun ágóði tónleikanna renna óskiptur í námssjóð fyrir Hilmar Örn. Viljum við með því sýna honum örlítinn þakklætilvott fyrir það óeigingjarna starf, sem hann hefur lagt af mörkum fyrir samfélagið hér austan fjalls undanfarna áratugi.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Kórfélagar í kórum Hilmars
------------------------------------------------------------------------------------------
Með tónum skal töfruð fram gleði
15 september, 2008
Ráð haldið til stefnu
07 september, 2008
Hraðlitun fyrir kónginn
Aarhus Universitets årsfest og 80-års jubilæum |
Fredag 12. september 2008 kl. 13:30 |
H.K.H. Kronprinsen er til stede ved Aarhus Universitets årsfest og 80-års jubilæum i Århus. |
Officielt besøg i Bulgarien |
Mandag 15. september 2008 - Onsdag 17. september 2008 |
Kronprinsparret aflægger officielt besøg i Bulgarien i dagene 15.-17. september. Ég verð að viðurkenna, að saga gamla unglingsins af merkisferðinni sem hér er um að ræða felur í sér meiri dramatík og spennu en sú sem birtist með því að laumast í dagbókina hans Friðriks. Það er hinsvegar jafn ljóst, að hin sunnlensku höfuð munu eiga ánægjulegar stundir í hinni konunglegu veislu. Það er svona þegar maður hefur ekkert að segja af sjálfum sér, þá er fínt að geta smjattað lítillega á öðrum höfðum. Kátt verður í konungs rann. Kannski nokkra brúnku fann Sigrún við að sóla sig, sú verður nú glæsilig. |
Eldri borgari kaupir skjávarpa (eftirmáli með Ali)
Þetta má heita framhald þessa . Eftir að ég hafði nú fengið krónurnar sem ég hafði greitt fyrir skjávarpann sem kom svo aldrei, sat ég uppi ...
-
Heilsugæslustöðin í Laugarási á vígsludegi 1997 (mynd: Jónas Yngvi Ásgrímsson) Ég hefði óskað þess, að fyrstu dagar nýs árs yrðu ánægjulegri...
-
Það er ótvíræður kostur við þorrabót eldri borgara í Biskupstungum, að það er ekki boðið upp á dansiball með tilheyrandi hávaða þegar fól...
-
Líklega lið annars bekkjar veturinn 1971-1972. Aftari röð f.v. Helgi Þorvaldsson, Eiríkur Jónsson, Kristján Aðalsteinsson, Páll M, Skúlaso...