Ekki vafðist fyrir okkur fD að ljúka því sem ljúka þurfti í höfuðstað Suðurlands í morgun, enda orðin með eindæmum þjálfuð í að vita hvað við þurfum í raun til að lifa með umtalsverðri reisn næstu vikuna. Það má segja, að minnismiðar séu að verða óþarfir í þessum kaupstaðarferðum.
Kannski var nú helsti tilgangurinn með þessari ferð að greiða atkvæði í þessum Alþingiskosningum sem framundan eru. Eins og fram hefur komið hér áður, hef ég verið nokkuð tvístígandi varðandi það hvernig atkvæði mitt geti nýst sem best þeim stjórnmálaflokkum sem næst standa þeim gildum sem mér finnst mikilvægt að séu í hávegum höfð á þessu ísahlýja landi, þar sem varla er hægt að tala um að komið sé haust, ennþá, hvað þá vetur.
Konan sem sat bak við skrifborðið, vildi sjá skilríki, sló eitthvað inn, náði síðan í kjörseðil og umslag. Rétti mér þetta tvennt og benti mér síðan á að ganga eftir húsinu endilöngu þar til ég kæmi að kjörklefa, sem ég gerði auðvitað. Þar fann ég, bakvið sturtuhengi, aðstöðu þar sem gert var ráð fyrir að þeir sem inn kæmu, þyrftu ekki að setjast, enda kannski óþarfi, sérstaklega ef enginn vafi léki á hver skyldi nú fá atkvæðið. Ekki er því að neita, að ef efi minn hefði verið því meiri, hefði nú ekki verið slæmt að geta tyllt sér og ekki hefði nú blessaður kaffisopi, jafnvel smá koníaksdreytill komið sér illa við slíkar aðstæður, en ég var nú ekki svo langt frá niðurstöðunni.
Inni í kjörklefanum, eða sturtuhenginu, var sem sagt borð sem maður þurfti að standa við. Á því, uppi við vegginn, var röð af TRODAT stimplum, sem merktir voru hver með sínum bókstafnum. Ég lét augun reika frá einum stimplinum til annars, þar sem ég hafði opnað kjörseðilinn, en hann var næstum eins og fermingarkort. Utan á honum svartar, óreglulegar línur til að tryggja að ekki væri nú hægt að lesa í gegn, sem enginn möguleiki hefði verið á hvort sem var, enda seðillinn úr svokölluðum karton pappír. Sennilega er þetta gert, eins og flest annað, sem þarna fer fram, til þess að draga úr líkum á að lögmæti utankjörfundaratkvæðagreiðslu yrði dregið í efa og jafnvel kært.
Ég neita því ekki, að hönd mín nánast réði því að ég tók einn stimpil, en ekki annan, enda staðfastlega þeirrar skoðunar, að að fjöldi stjórnmálaflokka sé ekki til þess fallinn að gera Ísland að betra landi.
Ég tók stimpil og stimplaði á miðjan kjörseðilinn í þar til gerðan reit. Teningnum var kastað. Ég verð að lifa með þessari ákvörðun minni, og er bara nokkuð sáttur við hana, svona miðað við allt og allt. Ég ætlaði að þessu búnu, að skila kjörseðlinum og ljúka málinu þannig, en það var nú ekki svo einfalt. Ég verð að hafa fyrir því að koma atkvæðinu á skrifstofu Bláskógabyggðar eða fá einhvern til að fara með hann fyrir mig á kjördag í viðeigandi kjördeild, bara til þess að hægt verði síðan að flytja hann aftur á talningarstað í Suðurkjördæmi. Mikið bull, að mínu mati. Við tóku pælingar um hver væri best til fallinn að sinna þessu verki, en ekki kom nú hver sem er til greina. Um þetta varð niðurstða og málið er í höfn.
X fær fólk víst ekki að setja á kjörseðla fyrr en á laugardag, en þá verð ég fjarri góðu gamni, ef að líkum lætur. Það verð ég að segja alveg eins og er, að mér er harla mikið sama um að missa af þeirri gleði, eins og í stefnir. Mér sýnist að áfram verði það sama uppi á teningnum. Það verður þannig þar til hægt verður að bera traust til þeirra framboða og frambjóðenda sem vilja fá X-ið okkar við sinn staf á kjörseðlinum.
Djö... held ég nú að við værum mikið betur sett, ef stjórnmálamenn þyrftu að aflétta leynd af fjármálavafstri sínu með ættmennum og viðskiptafélögum. Ég held, svei mér þá, að þetta fyrirbæri "bankaleynd", sé sá þáttur sem stendur mest í vegi fyrir því að á þessu landi verði hægt að byggja upp traust á ný.
Hvað um það, ekki raunar margt fleira um það að segja, en í lágvöruverðsverslun í framhaldinu rakst ég á forseta og bæjarstjóra, harla brosmilda báða. "Það þýðir víst ekkert að eiga orð við þig", sagði forsetinn kankvís, um leið og hann snerti öxl mína létt (engan veginn kynferðislegt áreiti þar á ferð). "Nei, þannig held ég að tíma þínum væri ekki vel varið", svaraði ég. Í framhaldinu brostum við hvert við öðru, forsetinn, bæjarstjórinn og ég. Ég sá ekki hvort fD brosti, en tel það fremur ólíklegt.
Forsetinn og bæjarstjórinn hurfu út í haustdaginn, en við fD keyptum okkur skyrdrykk.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Sæludagar í sandkassanum (12 - LOK)
Framhald af þessu Þannig er það víst alltaf, að það sem byrjar á annað borð, því lýkur á endanum. Þannig var það einnig með þessa ferð til D...
-
Heilsugæslustöðin í Laugarási á vígsludegi 1997 (mynd: Jónas Yngvi Ásgrímsson) Ég hefði óskað þess, að fyrstu dagar nýs árs yrðu ánægjulegri...
-
Það er ótvíræður kostur við þorrabót eldri borgara í Biskupstungum, að það er ekki boðið upp á dansiball með tilheyrandi hávaða þegar fól...
-
Líklega lið annars bekkjar veturinn 1971-1972. Aftari röð f.v. Helgi Þorvaldsson, Eiríkur Jónsson, Kristján Aðalsteinsson, Páll M, Skúlaso...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli