![]() |
Þegar smellt er, stækkar myndin. :) |
Þannig er það ekki í Kvistholti.
Tilhugsunin um að hagamúsin geri sig heimakomna innandyra er óendanlega hrollvekjandi. Það er meira að segja svo, að það kveður við hálfkæft óp í hvert sinn sem mús bregður fyrir í ljósgeislanum þar sem ekið er um sveitir landsins.
Hagamýs eru ekki boðnar velkomnar í Kvistholt.
Nú er lokið framkvæmdum, að lokinni hönnun, efnisöflun og samsetningu hliðs í dyrnar út á pallinn. Eins og nærri má geta er hönnunin snilld í einfaldleika sínum, efnisöflunin tók aðeins á, þar sem áhöld voru um hve hátt hagamús gæti stokkið, eða klifið og það lágu fyrir frásagnir um að þær geti auðveldlega komist inn um op í 50 cm hæð, með því, einfaldlega, að stökkva. Þá munu þær einnig geta klifið veggi og komist þannig jafnvel upp á efri hæðir. Niðurstaðn varð því um að fest voru kaup á hóflegu magni af flugnaneti, enda er músaneti ekki treyst, eftir frásagnir um að hagamýs komist auðveldlega í gegnum op sem eru vart meira en sentimetri í þvermál. Ágætir listar í hliðgrindina fengust í ruslagámi bygginavöruverslunarinnar.
Svo var ekkert að vanbúnaði. Ramminn útbúinn (reyndar aðeins mál á fá hann hornréttan) flugnanetið heft á hann, viðeigandi tappar settir á hurðarkarminn og hliðinu smeygt í.
Nú má sjá spendýrin litlu spígspora á pallinum, með biðjandi blik í auga, skjálfandi af kulda. Þeim mætir kuldalegt augnaráð og engin samúð, jafnvel ákveðin ögrun: "Reyndu bara að stökkva."
Engin ummæli:
Skrifa ummæli