Sýnir færslur með efnisorðinu Böðvar Ingi Ingimundarson. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Böðvar Ingi Ingimundarson. Sýna allar færslur

23 júlí, 2026

Böðvar Ingi - ein lítil minning.

OKTÓBER 1981

18. sun  Talaði við Böðvar Inga. Hann ætlar að taka bygginguna.
27.þri  Böðvar Ingi kom og tveir með honum, í mótauppslátt. Næstu dagar fóru í þetta.
31. lau Sökklar járnabundnir.
NÓVEMBER 1981
2. mán  Vann við uppslátt – Böðvar og hans menn.
3. þri  Uppslætti lokið – talaði við M....
4. mið Vann við uppslátt. Gísli talaði við M....
5. fim M... skoðaði uppsláttinn og járnabindinguna. Hann fordæmdi þetta, en sagðist ætla að gleyma því.
6. fös Vann við járnabindingu.
7. lau  Áfram járnabinding og stillansagerð
8. sun Stillansagerð.
9. mán Í dag átti að steypa, en Steypustöðin klikkaði.
10. þri  Steyptir sökklar í -2°C . – 26 rúmmetrar.  Ég fékk krana til að hífa steypuna. 
13. fös  Reikningur kom frá Steypustöðinni kr. 19,1973,10.
23. mán Böðvar kom með reikning ca kr 12.000. Samtals til greiðslu vegna sökkla og steypu 34.200 (um 1.5 milljónir í jan. 2024).

Skrýtin minningargrein atarna. Það sem þarna fór fram skipti nú ekki miklu í lífi Böðvars Inga Ingimundarsonar, byggingameistara á Laugarvatni, um það bil einn mánuður af áratuga starfi hans við byggingar húsa, stórra og smárra. Þarna var hann rétt rúmlega fertugur. Það styttist nú í að hálf öld verði liðin frá þessum dagbókarpunktum. 

Þó þessi mánuður hafi ekki markað merkjanleg spor í starfsævi Böðvars, skipti hann miklu máli fyrir mína fjölskyldu, sem þarna var, af vanefnum að hefja bygginu hússins síns í Laugarási.

Auðvitað hefði Böðvar og hans menn átt að halda áfram með þessa byggingu, en af því varð ekki, því, eins og greina má í dagbókarbrotinu hér efst, kom upp vandamál. Byggingafulltrúinn M... setti niður fótinn, og byggingarframkvæmdir stöðvuðust. Þessi byggingafulltrúi var verkfræðimenntaður og ku ekki hafa haft mikið álit á byggingatæknifræðingum, en það var einmitt einn slíkur sem hafði teiknað undirstöður hússins. Við tók margra mánaða þras og tilraunir til að uppfylla kröfur, sem aldrei tókst að uppfylla. Þessu lauk ekki fyrr en byggingafulltrúinn lét af störfum, eða var látinn fara. 

Böðvar skilur eftir sig mikið ævistarf. Hann lést þann 13. júlí s.l. og útför hans var gerð frá Skálholtsdómkirkju í dag.

Kvistholt í Laugarási




Böðvar Ingi - ein lítil minning.

OKTÓBER 1981 18. sun   Talaði við Böðvar Inga. Hann ætlar að taka bygginguna. 27.þri   Böðvar Ingi kom og tveir með honum, í mótauppslátt. N...