03 júní, 2009

Eitt andardráttartak

Ég er þess fullviss, að ekki hefi ég tekið þátt í jafnmörgum samkundum áður á jafnstuttum tíma og á laugardegi og sunnudegi um hvítasunnuhelgina. Talan sem ég tel hér fram er 5, frá hádegi á laugardegi eitthvað framyfir miðnættið á sunnudagskvöldi.
Það verð ég að viðurkenna að þó ég sé alræmt samkvæmisljón, þá var þetta í efri kanti þess sem ég tel rétt að leggja á sig.
Ég mun ekki telja fram allt það sem þarna fór fram, enda vita þeir sem þetta lesa væntanlega flest um það.
Ég fylltist einhverri ólýsanlegri orku í gær, eftir að ég hafði heyrt af því um helgina að ranabjöllu $#"/=)%$#"!) - ið væri aftur lagst á viðjuna með veginum. Ég nýtti þennan kraft til að útvega mér viðeigandi efni hjá hG og úða síðan viðjuna í bak og fyrir þar til kúturinn var tómur. Mér til ánægju sá ég í dag að bévítans kvikindin voru horfin.
Keflavíkurferð í dag tók sinn toll og get ég ekkert gert annað núna en skrifað, enda kallar það ekki á neina sérstaka orku nema í þeim tilvikum sem ég ætla að segja eitthvað af viti.

Næstu dagar stefna í að vera þrungnir endurfundum og ævintýrum. 

(engin vísa - of erfitt í ljósi andlegrar ofþornunar)

2 ummæli:

  1. Nú er ég nokkuð forvitin að eðlisfari...núna var ég á svæðinu amk frá hádegi á laugardegi og til sunnudagskvölds, einhverra hluta vegna tekst mér "aðeins" að telja upp 4 viðburði sem áttu sér staði á þessu tímabili...getur verið að þú hafir meint: frá föstudagskvöldi til mánudags? ;)

    Annars er ég bara að "njóta" þess að vera eini Kvisthyltingurinn á landinu þessa dagana........

    SvaraEyða
  2. Njóttu vel Guðný Rut. Pabbi þinn hefur væntanlega verið farinn að hugsa fram til BerlínarBrjálæðisins með ástkærum kórnum sínum og talið hann sem fimmtu hátíðina.

    SvaraEyða

Hin tápmiklu 12 og þjófagengið (síðari hluti)

  Framhald af þessu Þar sem hin tápmiklu 12 stóðu fyrir utan flóttaherbergið, var óhjákvæmilegt að hugurinn beindist að verkefninu framundan...