Ég setti mér það markmið að upplifa um þessa um þessa verslunarmannahelgi (á þessari verslunarmannahelgi, ef maður á ættir að rekja til Grundarfjarðar eða þar um kring) hvernig ástandið er á Geysissvæðinu þegar ferðamannafjöldinn er eins og hann getur mestur orðið. Ég stóð við það og hafði með mér EOS-inn svo hægt væri síðar að sannreyna upplifunina.
Veðrið var auðvitað eins gott og best var á kosið, utan það að það hefði mátt vera skýjað, svona upp á birtuskilyrðin að gera.
Ég og samferðafólk vorum síðan þarna uppfrá í um tvo klukkutíma frá því um kl. 11:00 til 13:00, og gengum á Laugarfell þaðan sem er ágætt útsýni yfir svæðið. Eins og við mátti búast var þarna á sama tíma og við fjöldi ferðamanna af ólíku þjóðerni, en fjarri því að teljast eitthvað sem þetta svæði ræður ekki við að taka við. Ég neita því ekki, að ég hafði átti von á talsvert meiri fjölda en reyndin var, ekki síst þar sem fréttir höfðu greint frá því að metfjöldi skemmtiferðaskipa lægi í Reykjavíkurhöfn.
Niðurstaðan var sem sagt sú, að ég náði ekki markmiðinu um að upplifa kraðak á Geysissvæðinu. Ég hefði kannski á að hringja á undan mér og spyrja hvenær dags þarna væru flestir á ferð.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða myndir geta smellt hér.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Litlir kallar og litlar kellingar
Heilsugæslustöðin í Laugarási á vígsludegi 1997 (mynd: Jónas Yngvi Ásgrímsson) Ég hefði óskað þess, að fyrstu dagar nýs árs yrðu ánægjulegri...
-
Heilsugæslustöðin í Laugarási á vígsludegi 1997 (mynd: Jónas Yngvi Ásgrímsson) Ég hefði óskað þess, að fyrstu dagar nýs árs yrðu ánægjulegri...
-
Kortið sýnir staðsetningu þéttbýliskjarna í uppsveitum Árnessýslu. Ég vil nú ganga svo langt að halda því fram, að sú staða sem nú er komin ...
-
Fyrir nokkrum dögum birtist auglýsing í tilteknu dagblaði, þar sem óskað er eftir verkefnastjóra til að halda utan um byggingu baðlóns í Lau...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli