Svona hefur þetta gengið síðan: ég veit ekki eitthvað og síðan flýtur vitneskjan um það inn í höfuð mitt og ég skil í rauninni hreint ekki hversvegna hún var þar ekki alltaf. Ég fæ enn, stöðugt staðfestingu á ófullkomleika mínum og er fyrir nokkru búinn að átta mig á því, að ég mun aldrei vita allt sem ég ætti sennilega að vita, eða sem er þess virði að vita.
Ég er ekki einn um að vera svona því þetta á við um okkur öll.
Í síðasta pistli ýjaði ég að lítilsháttar vanda sem tengdist bílaleigubifreið sem ég hafði umráð yfir í borg Margrétar drottningar fyrir nokkrum dögum. Ævistarf mitt kallar á að ég deili þeirri þekkingu sem ég innbyrti á þessum tíma og sem tengist því hvernig maður tekur og skilar bílaleigubíl á Kastrup flugvelli.
Það er í eðli mínu að fræða fólk og freista þess þannig að stuðla að því, að líf þess verði að einhverju leyti skárra en það hefði ella orðið. Því hef ég ákveðið að birta leiðbeiningarnar sem hér fylgja og ég tel nokkuð ítarlegar og skotheldar.
A. Að taka bílaleigubíl á Kastrup.
A: Þarna í enda hússins eru bílaleigurnar. B: Þarna inni bíða bílarnir. C: Þarna er ekið út úr húsinu, beygt til vinstri í gegnum hringtorgið og þaðan inn á hraðbraut í bæinn. |
B. Að skila bílaleigubíl á Kastrup
Þetta er eiginlega snúni þátturinn í þessu öllu saman og sá sem ég lærði mest af. Það þurfti sem sé að skila bílnum áður en sest væri inn í flugvélina og haldið heimleiðis. Þarna gerðust nokkuð dramatískir hlutir.Áður en lagt var af stað út á flugvöll stillti ég auðvitað GPS tækið og það samþykkti að vísa mér á á "CAR RENTAL" á Kastrup. Það var þó einhver beygur í mér, sem síðan reyndist fyllilega réttlætanlegur. Tækið tók mið af staðsetningu bílaleiganna fyrir þá breytingu sem nú er orðin á.
Þetta olli allt að því hörmungum, en sem betur fer hafði verið tekin samhljóða ákvörun um að fara vel tímanlega af stað, ef eitthvað skyldi nú koma upp á.
A: Torgið sem var örlagavaldur B: Bílastæði þar sem bílaleigubílum skal skilað. C: Biðstöð fyrir skutluna sem flytur fólk í flugstöðina. |
Hér er önnur mynd sem greinir nánar frá því máli.
Gul lína táknar leiðina sem skutlan ekur frá bílaleigunum. Græna línan sýnir gönguleiðina sem við tekur inni í Terminal 3. |
Þegar nálgaðist flugvöllinn varð mér ljóst að GPS tækið ætlaði að láta okkur fara á staðinn sem bílaleigurnar voru á áður. Þar með varð bara að treysta á hyggjuvitið, sem var nú ekkert sérstakt svo sem, enda ávallt treyst á að tækið gerði enga vitleysu.
Við komum að torginu. Það sem síðan gerðist má sjá á myndinni hér fyrir neðan:
Við vorum sem sagt aftur á leið til Kaupmannahafnar. Svo mikið veit ég um hraðbrautir, að þar er frekar sjaldgæft að hægt sé að snúa við og því blasti við ökuferð út í óvissuna.
Myndin hér fyrir neðan sýnir þá leið sem farin var og hún var bara helv. ári löng.
Eftir hina örlagaríku beygju út úr torginu. A: Flugvallarstarfsmaðurinn ónákvæmi B: Hin ranga ákvörðun. C: Þar sem loksins var hægt að snúa við. D: Bílastæðið þar sem loks var hægt að anda léttar. |
1. Ég hefði átt að skoða þetta kort áður en ég lagði í þessa ferð.
2. Ég átti að muna eftir GPS tækinu mínu.
3. Ég hefði átt að kynnast betur staðháttum í kringum bílaleigurnar þegar ég tók bílinn.
4. Ég hefði átt að spyrja flugvallarstarfsmannin fleiri spurninga.
......og svo framvegis.
Nú er ég hinsvegar svo heppinn að vita hvernig það gengur fyrir sig að taka og skila bílaleigubíl á Kastrup. Vitneskja mín er svo nákvæm og yfirgripsmikil, að ég get leyft ykkur að njóta góðs af.
Verði ykkur að góðu, lesendur góðir.
Svo held ég áfram að læra eitthvað nýtt. Bílaleigur á Kastrup eru nú í mínum huga jafn einfalt mál og þetta með eplin fjögur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli