18 júní, 2026

Laugarás: Hluthafinn

Það hafa víst einhverjir komist að þeirri niðurstöðu, eftir tiltölulega jákvæða sýn sem ég hef virst hafa, á baðlónið í Laugarási, að ég hlyti að vera hluthafi í þeirri starfsemi. 
Með öðrum orðum má segja sem svo, að ef ég telst lýsa "óeðlilega" jákvæðu viðhorfi til einhvers felur það í sér að ég hljóti að hafa hagsmuna að gæta. Þannig er það t.d. í umræðunni miklu sem gengur yfir okkur þessa mánuðina, þar sem við tökumst á um hvort við eigum að segja JÁ eða NEI þann 29. ágúst.
Auðvitað getur verið margt til í þessu. Hagsmunir eru mikilvægur hvati til þess að berjast með einhverju eða á móti. En, hvað eru hagsmunir?  Ég hefði augljóslega hagsmuni af því að lónið drægi að sér sem flesta gesti, ef ég ætti umtalsverðan hlut í þeirri starfsemi. Hefði jafnvel keypt hlut í henni fyrir milljónir.
 

Getur maður haft hagsmuni af einhverju, sem ekki hafa neitt með fjármuni að gera?  Mér er ljúft að svara þeirri spurningu játandi. Ef þér þykir, til dæmis, vænt um börnin þín og vilt að þeim gangi sem besti á lífsgöngunni, þá hefur þú hagsmuni af því að styðja við það sem kemur þeim vel. Ef framtíð ækustöðvanna skiptir þig máli, þá hefur þú hagsmuni af því að þar blómstri allskyns starfsemi. Ef þér er mikið í muni, að þjóðin þín fái að búa við frið og velsæld til framtíðar, þá telst þú hafa hagsmuni af því. 
Þessir ofangreindu hagsmunir fjölga ekki krónunum á bankareikningnum, en þú færð á móti tilfinninguna fyrir því að þú sért gera þitt til að láta gott af þér leiða, fyrir aðra en sjálfan þig.


Nei, ég á ekki fjárhagslegra hagsmuna að gæta í tengslum við lónið Laugarási. Hagsmunir mínir felast í því að þar fái byggðin og mannlífið að blómstra. Ef ég sé eitthvað það gerast þar sem ég tel stuðla að þeirri sýn, þá styð ég við það eftir því sem ég get.

Nú hefur Bláskógabyggð keypt hina uppsveitahreppana út úr Laugarásjörðinni. Mér finnst það jákvæð byrjun á skrefi. Það á hinsvegar eftir að koma í ljós, hvort skrefið reynist breyta einhverju í jákvæða átt fyrir Laugarás. Fram til þessa hefur mikið skort á að sveitarfélagið hafa haft hagsmuni Laugaráss ofarlega á blaði við þróun og uppbyggingu sveitarfélagsins. Það hefur frekar verið á hinn veginn. 

Ég neita því ekki, að ef eigendur Laugarás Lagoon ákveða nú, að jákvæðni mín í garð lónsins teljist slík, að hún verðskuldi umtalsverðan hlut í fyrirtækinu, þá myndi ég eflaust taka vel í að taka við honum. Sú er hinsvegar ekki staðan nú.



Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Laugarás: Hluthafinn

Það hafa víst einhverjir komist að þeirri niðurstöðu, eftir tiltölulega jákvæða sýn sem ég hef virst hafa, á baðlónið í Laugarási, að ég hly...