01 september, 2026

Loks aftur í Kvistholt á matarhátíð

Kvistholt í júní 1983
Ég neita því ekki, að það var ágætlega áægjulegt að kíkja aðeins á matarhátíðina í Laugarási s.l. laugardag. 
Þar virðist mannlíf allt á uppleið, sem mér finnst sannarlega fagnaðarefni. Þarna er að stíga fram fólk og fyrirtæki sem vilja byggja upp og efla.

Við getum alveg sagt að Laugarás hafi átt sinn blómatíma, sem fólst fyrst og fremst í fólkinu sem þar skaut rótum. Gallinn var bara sá, að það vildi ekkert standa í að flytja í burt úr þessu þorpi í skóginum, eltist því bara í rólegheitum í takti hvert við annað, dó síðan drottni sínum eða flutti burt til að eyða ellinni á stöðum þar sem þjónustan er meiri. Af þessum sökum áttu umskiptin sér stað á tiltölulega fáum árum.  


Það varð mikil breyting á íbúahópnum. Nýja fólkið hefur eðlilega þurft tíma til að fóta sig, kynnast nýju fólki og aðstæðum, uppgötva það að það gerist fátt nema maður geri það sjálfur á þessum stað.
Sannarlega veit ég ekkert hver framtíð mannlífsins í Laugarási verður, en tel víst að íbúarnir finni taktinn sem hentar þeim.

Það var ánægjulegt að finna það, í tengslum við matarhátíðina, að nýja fólkið er að stíga fram af krafti og tilbúið að gestum innsýn í það sem það er að bralla.
Við komum þarna við í gróðurhúsinu í Lyngási þar sem kynnt var og seld, framleiðsla frá svæðinu. 


Þá komum við í Laugargerði, þar sem Úlfar Örn myndlistarmaður er búinn að koma sér vel fyrir og sýndi falleg verk sín. Næstu spor voru reyndar nokkuð hikandi. Í Kvistholt höfum við fD ekki komið síðan við fluttum á Selfoss vorið 2020. Tilfinningar til staðarins voru sennilega of miklar til að auðvelt væri að taka sig til og ganga inn í hús sem ókunnugt fólk var búið að koma sér fyrir í og breyta eftir sínu höfði. Við létum verða af því, vegna þess að í Kvistholti tók eigandinn Andrea Ólafs, myndlistarmaður á móti fólki í opnu húsi. Þetta var sérstök upplifun. Það er skemmtilegt að listamenn skuli velja Laugarás til búsetu, en sannarlega skiljanlegt.


Heimsókn okkar í Laugarás lauk með kaffisopa í Slakka, en þangað liggur leið okkar á hverju sumri og alltaf gaman að hitta Helga bónda, en hann var víst að tína ber þennan daginn.
Ég var með myndavélina, eins og gengur, en annað en myndataka fyllti hugann og því afraksturinn eftir því.
Ég hlakka til að fylgjast með því sem framundan er í Laugarási. 
Viðbót: Ein myndanna hér fyrir neðan sýnir Pál Þorsteinsson í Borgarholtskoti og er verk Úlfars Arnar. Jónatan Hermannson skrifaði um hann í Litla Bergþór árið 2016 og því hægt að lesa þar lítið eitt um nafna: https://timarit.is/page/7054402#page/n11/mode/2up

Nokkrar myndir úr Kvistholti nútímans.








Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Loks aftur í Kvistholt á matarhátíð

Kvistholt í júní 1983 Ég neita því ekki, að það var ágætlega áægjulegt að kíkja aðeins á matarhátíðina í Laugarási s.l. laugardag.  Þar virð...