25 febrúar, 2022

Nema eitt blóm

Aðfaranótt 24. febrúar, árið 2022, hófst innrás rússnesks herliðs inn í Úkraínu

Tilhugsunin um að þessi innrás muni mögulega hafa víðtækari áhrif,  er mörgum næstum ofviða að velta fyrir sér. Seinni heimstyrjöldin myndi sennilega blikna í samanburðinum við það sem gæti beðið okkar. 

Ætli sé ekki best að við hugsum ekki þangað; gerum ráð fyrir að það sé nægilegur skynsemisvottur eftir, meðal þeirra sem ráða málum okkar, til að þeirri þróun verði afstýrt. Kannski er það ekki ætlunin að sú verði niðurstaðan. Mögulega er þetta leikrit sem klúbbar þeirra sem með völdin fara, hafa komið sér saman um að setja upp, beinlínis til að treysta völd sín og auka á óbilandi óttablandna virðingu okkar fyrir leiðtoghahæfni þeirra.

Í rauninni vitum við ekkert nema það sem við sjáum eða heyrum.. Við hneigjumst til að trúa því sem við sjáum eða heyrum. Það er veikleiki okkar. 
Veikleiki, vegna þess, að  það sem okkur er sagt, eða það sem við sjáum er mögulega frekar blekking en sannleikur. Það sem við sjáum eða heyrum er það sem þeir vilja að við sjáum. Hvað vitum við svosem um það sem gerist þegar slökkt hefur verið á hljóðnemunum eða myndavélunum?  Er andlitið á skjánum það sem það virðist vera? Er það sem sagt er satt, eða hrein og klár blekking? 
Er kannski alltaf verið að spila með okkur vegna þess að við erum auðtrúa múgur? 

Já, ég viðurkenni það bara: ég set spurningamerki við allt sem stjórnmálamenn eða aðrir forystumenn í þjóðmálum og alþjóðamálum setja frá sér. Mér finnst oftar en ekki að þeir séu ekki einlægir; það séu til staðar duldar fyrirætlanir.

Ég vona að innrásin í Úkraínu, sé leikrit með upphaf miðju og endi og að endirinn verði viðunandi, þó aldrei sé viðunandi að láta sprengjum rigna yfir saklaust fólk og réttlæta það svo sem fórnarkosnað, til að gæta einhverra skuggalegra hagsmuna.



Síðasta blómið

Undir XII. alheimsfrið
(eins og fólk mun kannast við).
eftir blóðug öfgaspor
endursteyptist menning vor.

Heimsbyggð öll var eydd að grunni.
Uppi stóð ei tré né runni.
Bældir heimsins blómsturgarðar.
Brotnir heimsins minnisvarðar.

Lægra en dýr með loðinn bjór
lagðist mannkind smá og stór
Horfin von, með hlýðni þrotna,
hundar sviku lánadrottna.

Sótti á bágstatt mannkyn margur
meinkvikinda stefnisvargur.
Músík-, bóka- og myndalaus
manneskjan sat með kindahaus,
gleði-, dáða- og girndalaus.

Glötunin virtist þindarlaus…

Pótintátar XII. stríðsins,
tórandi enn á meðal lýðsins,
mundu orðið ekki par
út af hverju stríðið var.

Hvort til annars drós og drengur
dreymnum augum renndu ei lengur,
heldur gláptu öndverð á:
Ástin sjálf var lögst í dá…

Ein síns liðs á víðavangi
vorkvöld eitt var telpa á gangi
og hún fann á sínu sveimi:
Síðasta blóm í heimi.

Heim hún stökk þá sögu að segja
að síðasta blómið væri að deyja.
Ungum pilti út í haga
einum fannst það markverð saga.

Saman forðuðu sveinn og meyja
síðasta blóminu frá að deyja.
Í heimsókn komu, að heilsa því,
hunangsfluga og kólibrí.

Bráðum urðu blómin tvö
og blómin tvö að fjórum,
fimm, sex, sjö… …
og síðast breiðum stórum.

Laufgast tók hvert tré og lundur.
(Telpan fékk sér snyrtingu).
Piltinum fannst hún alheims undur.
Ástin var í birtingu.

Börnin tóku að hoppa og hlæja
hnellin, keik og létt á brá.
Hundar snéru heim til bæja
(hefði verið að ræða um þá).

Ungi maðurinn framtaksfús
fór að byggja úr steinum hús,
og senn fóru allir að hlaða og hýsa,
og heimsins byggðir að endurrísa,

og söngvar lífsins upphófust enn,
og fram komu fiðlarar
og fjölbragða smágusar
og skraddarar og skóarar
og skáld og listamenn,
höggmeistarar, hugvitsmenn
og hermenn!

Og aftur komu ofurstar
og aftur risu upp kapteinar
og majórar og marskálkar
og mannkynslausnarar!

Niðri í dölum, fram til fjalla
fólk sér dreifði um veröld alla.

En fyrr en varði fjallahyggja
fór að sækja á dalabyggja,
og þeir sem áttu heima á hæðum
hugann sveigðu að lægri gæðum.

Lýðinn ærðu í lygaskaki
lausnarar, með guð að baki,
uns eftir skamma hríð
hófst alheimsstríð.

Í stríði því var öllu eytt

ekki neitt
lifði af þann lokadóm,

nema einn piltur

nema ein telpa

nema eitt blóm.

(Ljóð Magnúsar Ásgeirssonar, sem er þýðing á dæmisögu (parable) eftir bandaríska skáldið James Thurber)

The Last Flower

27 janúar, 2022

Þunglömb

Myndin sýnir óþekkta eldri borgara
takast á við lóðin. 
Það ku vera að birta yfir, að þeirra sögn. Útþynnt veiran æðir um samfélagið, en ku vera hætt að vera sú ógn sem hún var. Forystumenn eða forystufólk er farið að berja sér á brjóst, svo sagan fái minnast þess sem fólksins, sem létti þessu oki af okkur, þó hlutur sumra þeirra sé verri enginn, ef grannt er skoðað. 

Það var hinsvegar ekki þetta sem ég ætlaði að lemja inn hér og nú, heldur birtan sem fólst í því að komast í fyrsta sinn síðan um miðjan desember í heilsurækt undir stjórn í íþróttahöllinni miklu. 
Það toguðust á kvíði fyrir því að þurfa að toga sjálfan sig upp úr sófanum og tilhlökkun yfi því að fá að njóta þess að verða örþreyttur aftur, með tilheyrandi harðsperrum.   
Mér finnst það dálítið ósanngjarnt, að vera búinn að þræla og púla í líkamsrækt mánuðum saman, fara svo í mánaðarlanga pásu og komast þá að því að mánuðirnir höfðu skilið lítið eftir sig. Mér finnst að líkamsrækt eigi að skila einhverju varanlegra, en veit svo sem að þannig gerast ekki kaupin á eyrinni.  Maður verður víst að sætta sig við það.

Hvað um það, þarna hópaðist fjöldi fólks á besta aldri saman og tók upphitunargönguna. Síðan tók púlið við; lóðum var lyft, hné voru beygð, sprellikall var tekinn og vöðvar í dvala teygðir og hnykklaðir.
"Við erum nú engin unglömb!" varð einum þjáningarbróðurnum að orði, við hliðina á mér, þar sem lóðin og hnébeygjurnar voru farin að taka heldur mikið í afleiðingar hátíðahaldanna sem liðin eru. 
"Nei, við erum þunglömb!", gall þá við í þjáningarsystur, eins og frá hjartanu. Þetta eina nýyrði bjargaði þessum heilsuræktartíma og ég held áfram að kvíða fyrir og hlakka til frekari átaka næstu mánuði.


-------------------------

19 janúar, 2022

Hrossalækningar

Orðabókarskilgreiningin á hugtakinu hrossalækning er: 1. Það að lækna hesta. 2. Harðneskjuleg eða subbuleg læknisaðferð (læknisaðgerð). 

Ekki vil ég halda því fram, að umfjöllunarefni dagsins snúist beinlínis um hrossalækningar samkvæmt einhverri skilgreiningu og málvenju. Ég stend bara frammi fyrir þeirri áskorun, að ákveða hvort ég ætti að nota hrossaáburð við að lina vöðvabólgu eða bakverk, eða liðverki. Ef þessi áburður er ekki ætlaður mannfólki, heldur hrossum, hvernig í veröldinni ætti þá mannesku að láta sér koma það til hugar að nota hann að sjálfa sig?  Getur verið að þessi sami áburður sé einnig framleiddur fyrir mannfólkið, bara undir öðru nafni? Ef ekki, má þá ekki gera ráð fyrir að hann henti fólki hreint ekki og geti jafnvel verið skaðlegur? Svo er til þess að líta, að hross eru spendýr, rétt eins og maðurinn og í ljósi þess má ætla, með góðum vilja, að báðum þessum spendýrategundum geti hentað sami áburðurinn. 

Ég ákvað að reyna að bera saman hrossaáburðinn, sem kallast Healthy horse og algengan mannaáburð sem virðist eiga að hafa svipaða verkun, Voltaren (ekki Voltaren forte - sem er ekki til á þessum bæ).
Hér má sjá efnainnihald beggja þessaraa áburðartegunda:


Ég skil fleiri orð í lýsingu á hrossaáburðinn. Þar er t.d. vatn, glýserín, alkóhól, mentol, Aloalaufa- eitthvað, eitthvert blómaþykkni, einhver blómaolía, olía úr eucalyptus laufi (tröllatré), kamfóra.

Miklu minna skil ég að því sem myndar mannaáburðinn. Þar er þó að finna parafín, einhverskonar alkóhól og ilmkrem af einhverju tagi.

Augljóslega er ég enginn efnafræðingur og því ekki í neinni aðstöðu til að meta þessa áburði. Samt finnst mér hrossaáburðurinn einhvern veginn hljóma betur, eða vera meira aðlaðandi, ef ekki væri fyrir það, að hann er ætlaður á hross, en ekki menn, af einhverjum ástæðum. Kannski virkar hann ekki á fíngerða vöðva, liði og sinar manna, eða kannski hafa ekki farið fram vísindalegar rannsóknir á verkun hans á mannfólkið. 
Það vill svo til, að ég hef heyrt í það minnsta 3 sögur um notkun manna á þessum áburði. Í einu tilvikinu, þar sem opinber starfsmaður þjáðist að verkjum í mjöðmum, hurfu verkirnir eins og dögg fyrir sólu við notkun á áburðinum. Í öðru tilviki sagði kona í sveit frá því að hún hefði borið áburðinn á liðverki, ríkulega, með þeim afleiðingum að verkirnir versnuðu (hjá henni kom reyndar fram að notkun áburðarins er algeng meðal fólks á bænum), en það mun hafa verið vegna þess að hún hafði borið of ríkulegt magn á verkjastaðinn. Þriðja sagan er eiginlega ekki saga, en kona í blokk á Suðurlandi bar áburðinn að úlnliðsverki, án þess að fá bót. Verkirnir versnuðu heldur, og er of miklu magni kennt um.

Jæja, ég var stirður í bakinu í morgun, eftir meiri líkamsbeitingu en venja er til. Ég stalst til að skella áburðinum á bakið og sá fyrir mér allt þetta efnaglundur sogast í gegnum húðina og (og annað sem er síðan á milli hennar og hryggjarins) ráðast að upptökum verkjarins. Það var eins og við manninn mælt, bakverkurinn hvarf. Reyndar gerist það yfirleitt, jafnvel þó enginn áburður komi við sögu, enda hef ég alla jafna litla trú á áburðum, hverju nafni sem nefnast, til að takast á við innvortis bólgur eða verki.

Já ég er litlu nær og efast reyndar um að ég muni nota þennan áburð, að óbreyttu - í það minnsta þar til vísindarannsóknir benda ótvírætt til gagnseminnar. Svo er fólk að tala um annað lyf, sem ku henta hrossum vel.



 

22 desember, 2021

Guðrún Ingólfsdóttir (Gulla) - minning

Árið 2008:
Sigurður Jóhannsson, Guðrún Ingólfsdóttir
og Skúli Magnússon 
Það var haustið 1974 og ég hafði fengið kennarastöðu við Lýðháskólann í Skálholti, þar sem sr. Heimir Steinsson stýrði málum. Ég sá þetta sem tækifæri til að komast að því hvort kennsla væri eitthvað sem mögulega ætti við mig, tvítugur, með allt lífið framundan. Þáverandi kærasta og síðar eiginkona fékk einnig vinnu við skólann, svo þetta virtist bara vera hið ágætasta mál. 
Það var auðvitað ekki hægt annað en taka eftir ráðskonunni sem tók þarna á móti okkur, Guðrúnu Ingólfsdóttur, Gullu, sem átti eftir að verða ein þeirra sem hefur verið okkur samferða á þessari göngu sem lífið er. Sumarið áður hafði hún séð um matseldina í sumarbúðunum og var því orðin nokkuð vel kunnug staðnum.  
Gulla átti rauðan Fiat 127 á þeim tíma sem hún var í Skálholti. Ekki að það skipti neinu máli, svo sem, en einhvernveginn festist það í minninu.

Skálholt árið 1975: Guðrún Ingólfsdóttir,
Páll M. Skúlason og Dröfn Þorvaldsdóttir
Jarðvegurinn sem Gulla spratt upp úr var sannarlega ekkert til að kvarta yfir. Afi hennar og amma voru læknishjónin á Breiðabólstað á Síðu, þau Bjarni Jensson og Sigríður Jónsdóttir og foreldrar hennar voru Ingólfur Bjarnason, kaupmaður og kaupsýslumaður og Sigríður Guðmundsdóttir frá Skáholti, en hún var systir Vilhjálms skálds. 
Sjálfur Jón forseti Sigurðsson var langafabróðir hennar. 

Í desember 1959 gekk Gulla að eiga Jakob Guðvarðarson (1933-1992) og með honum eignaðist hún þrjá syni, Ingólf Bjarna 1960, Guðvarð Þórarin 1963 og Sigurð Björn 1968.  Móður sína missti Gulla árið 1965 og eftir það varð það hlutskipti hennar að annast um föður sinn. 
Leiðir Gullu og Jakobs skildi og hún varð einstæð, þriggja barna móðir. Þannig var staðan haustið 1974, þegar leiðir okkar lágu fyrst saman. 
Fyrir utan það að Dröfn og Gulla náðu vel saman við eldhússtörfin í Skálholti, gerðist það dag einn, sumarið 1974, líklegast, að miðsonurinn, Guðvarður, þá 11 eða 12 ára, lagði leið sína í Hveratún til að athuga hvort hann gæti fengið vinnu. Pabbi treysti sér ekki til að veita honum þessa ósk  hans nema heyra í móður hans fyrst. Hann fór í Skálholt þar sem Gulla tók erindinu vel og piltur var ráðinn til starfa. Í framhaldi af þvi varð til ævilangur vinskapur Gullu og foreldra minna. Pilturinn reyndist mikill dugnaðarmaður og var sumarvinnumaður í Hveratúni í ein þrjú sumur eftir því sem næst verður komist.

Eftir vetur okkar í Skálholti, hurfum við á braut, en Gulla sá um matarmálin í sumarbúðunum um sumarið. Það varð úr, að við fengum inni á heimili Gullu og föður hennar á Silfurteigi 2, fyrsta vetur okkar í borginni, en Gulla var þann vetur ráðskona á Skógum.  Eftir þann vetur hóf hún störf í Lyfjaverzlun ríkisins, þar sem hún var lengst af starfsævinnar eftir það.. 

Það var að vonum óskaplegt áfall þegar Ingólfur Bjarni lést í dráttarvélarslysi á bænum Gýgjarhóli II  þann 25. júlí, 1977, 16 ára að aldri og mig grunar að Gulla hafi aldrei komist fyllilega yfir það og lái henni það hver sem vill.  
Undir 1980 kynntist hún Sigurði Jóhannssyni (1930-2020), einstöku ljúfmenni og hagleiksmanni. Hann var húsgagnasmiður og skilur eftir sig margt glæsilegt handverkið. Ekki tel ég ólíklegt, að Gulla hafi stýrt því, að miklum hluta, hvert leiðir þeirra lágu í lífinu eftir að kynni þeirra hófust. Kynnin leiddu til hjónabands sem entist ævina á enda. 
Árið 1980 seldi faðir Gullu heimili þeirra á  Silfurteigi 2 og þá höfðu Gulla og Sigurður hafið samvistir og fluttu að Huldulandi í Fossvogi. Eitt leiddi af öðru og þar varð það úr, að Ingólfur flutti í litla íbúð sem var hluti af húseign í hans eigu á Laugavegi 27, en Gulla og Sigurður keyptu sér íbúð, sennilega í Birkihlíð í Fossvogi. Það má segja að þarna hafi skilið leiðir Gullu, föður hennar og systra hennar tveggja. 

Árið 2001: Híbýli Gullu og Sigurðar í Svíþjóð.


Gulla og Sigurður bjuggu víða á þeim, um það bil fjórum áratugum sem þau deildu súru og sætu. Fyrst í Huldulandi í Fossvogi, þá í Birkihlíð (sennilega) í Fossvogi, síðan á Þórsgötu. Eftir það tók við Svíþjóðardvöl um nokkurra ára skeið, en Siggi sonur Gullu var þá fluttur þangað og búinn að stofna fjölskyldu og fyrirtæki.  Eftir Svíðþjóðardvölina lá leiðin aftur heim til Íslands og þau settu sig niður á Bolungavík, en þar hafði Gutti þá komið sér fyrir og stundaði sjóinn. Eftir nokkur ár þar, fluttu þau í Borgarnes, þaðan í þjónustuíbúð í Boðaþingi í Reykjavík og að lokum á Hraunvang í Hafnarfirði.

Árið 2001: Heimsókn til Svíþjóðar.

Það er nú þannig, að stundum finnst mér það meinleg örlög að þurfa að vera uppi á sama tíma og sumir áberandi einstaklingar í þjóðfélaginu, en sem betur fer eru þeir margir sem á vegi mínum verða, sem ég þakka fyrir. Gulla var ein þeirra. Hún var sannarlega ekki skoðanalaus kona. Þannig var hún talsverður sjálfstæðismaður þegar við kynntumst henni fyrst, en eftir því sem árin liðu hallaðist hún æ meir til vinstri. Hún hafði til að bera skynsemina til að átta sig á pólitískum vindum í samfélaginu og réttlætiskennd hennar var sterk.  Synirnir tveir, sem hún átti eftir voru augasteinar hennar. "Gutti minn" og "Siggi minn", voru ávallt einhvern veginn það sem flest í lífi hennar snerist um, ásamt honum "Sigurði mínum" og sonasonunum. Það fór ekkert á milli mála hve stolt hún var af afkomendum sínum, og það mátti hún sannarlega vera. Báðir synirnir dugnaðarmenn og ömmusynirnir hver öðrum dásamlegri, að hennar mati.  

Júní, 2020: Dröfn, Páll, Gulla, Sigurður
Stöðug leit hennar að einhverskonar ró eða sátt, held ég hafi kannski átt þátt í því hve ör bústaðaskiptin reyndust verða. Ég held líka að Sigurður hafi notið nokkurs góðs af því, þar sem hann fékk tækifæri til að setja í stand, og græja ný heimili, enda var hann stöðugt að meðan heilsa og kraftar hans entust.

Eftir að Sigurður lést fyrir rúmu ári síðan, rétt að verða níræður, taldi Gulla sér ekki fært að halda íbúðinni, sem  þau leigðu dýrum dómum á Hraunvangi og fór að skoða möguleika sem í boði voru. Fljótlega stefndi hugurinn til Svíðþjóðar, en þar hugðist hún búa í nágrenni við Sigga og fjölskyldu hans og njóta í leiðinni sænskrar heilbrigðis- og félagsþjónustu. Það varð svo úr, að hún flutti utan í júlí s.l. 

Gulla lést í Svíðþjóð þann 23. nóvember og útför hennar var gerð í dag, 22. desember. 

Við erum þakklát fyrir næstum hálfrar aldar samfylgd hennar, Sigurðar og sonanna. 

Páll og Dröfn

Skólaspjald Lýðháskólans í Skálholti veturinn 1974-5






20 desember, 2021

Georg Franzson - minning


Ég vissi hver Georg var áður en hann flutti með fjölskyldu sinni í Laugarás árið 1978 til að reka þar garðyrkjustöðina Birkiflöt, en ekki meira en svo. Aðeins meiri urðu kynnin eftir að þau urðu Laugarásbúar. 
Eftir um tvö ár voru þau hjónin Georg og Brynja Ragnarsdóttir, búin að byggja sér íbúðarhús í Vesturbyggð 5, sem þau fluttu í um 1980. Þá höfðu þau fengið fengið á leigu landið milli sláturhúslóðarinnar og Vesturbyggðar og Georg stundaði þar útirækt. Á þessu landi, sem fékk nafnið Traðir, reis svo tæplega 800 ferm. gróðurhús einum þrem árum síðar. Þá komu börn þeirra Brynju inn í reksturinn.

Brynja, lést árið 1999 og um þrem árum síðar flutti Georg á Selfoss þar sem hann bjó til dauðadags, þann 10. desember s.l., þá rétt að verða 92 ára.   

Georg fæddist í Slesíu og bar þar nafnið Georg Michael Ant­onius Wyrwich, en hörmungar seinni heimstyrjaldar leiddu til þess, að eftir fjögur ár í flóttamannabúðum, lá leið hans, þá 19 ára, til Íslands, þar sem hann fékk vinnu við garðyrkjustörf  hjá Grími Ögmundssyni á Syðri Reykjum. Í stríðinu hafði hann misst föður sinn og tvo bræður. 

Um fimm árum eftir komuna til Íslands gengu Georg og Brynja í hjónaband og eignuðust fimm börn á næstu 9 árum.

Ekki treysti ég mér til að setja mig í spor Georgs, sem barns og unglings í Þýskalandi nazismans og í þeirri upplausn og skelfingu sem styrjöldin hafði í för með sér. Ég reikna þó með að lífsreynslan hafi sett varanlegt mark á líf hans. Hinsvegar minnist ég hans fyrir það hve hress hann var ávallt og góðlegur. 

Útför Georgs er gerð frá Skálholtsdómkirkju í dag.

Georg og Brynja með börnum sínum.
Aftar f.v. Jón Þór Þórólfsson (sonur Brynju),
Ragnheiður, Hjördís, Eiríkur.
Fyrir framan vinstra megin Heiðrún
og Íris hægra megin. (mynd af Fb)





24 nóvember, 2021

Ýmislegt leiðir af leiklestri

Frá því í menntaskóla hef ég haft talsverðan áhuga á leiklist, það verður að segjast. Það var Kristín Anna Þórarinsdóttir, leikkona, sem kom mér á bragðið. 
Þegar ég tók að mér kennslu í Lýðháskólanum í Skálholti, strax eftir stúdentspróf, hafði það meðal annars í för með sér, að ég var settur í að leikstýra nemendum í verkinu Happið eftir Pál J. Árdal. 
Síðar tók ég þátt í uppsetningu á Tobacco Road hjá Ungmennafélagi Biskupstungna. 
Talsvert kom ég svo að þorrablótum Skálholtssóknar gegnum tíðina: samdi, leikstýrði og lék, eftir því hvernig vindar blésu. 
Áhuginn var alltaf þarna, en starfa vegna og auðvitað fjölskyldu, varð minna úr en hefði getað orðið,  því maður forgangsraðar hlutum.

Úr uppsetningu á "Happinu". 

Ég, eldri borgarinn
Jæja, svo er ég kominn í hóp eldri borgara, svokallaðra og viti menn: það er boðið upp á námskeið í því sem kallað var leiklestur og viti menn: ég ákvað að taka þar þátt, þar sem ég taldi þetta námskeið varla verða mér um megn. Taldi að þarna myndum við æfa okkur í  lesa einhverja texta, ljóð eða prósa af einhverju tagi. 
Ekki neita ég því, að það hafa farið fjölmargar útgáfur af hugsunum gegnum hugann við að uppgötva hvað þarna var síðan á ferðinni, svona þegar námskeiðið fór að þróast. Það er nefnilega svo og hópnum sem þarna kemur saman eru konur og ég... reyndar annar karl, sem stakk af í frí, en kemur væntanlega aftur. Þessi staða veldur mér svo sem engum vanda, en vekur mig til umhugsunar um þátttöku karla á efri árum, í félagslífi.
Þorrablótsgervi.

Já, ekki nóg með það: það var farið að hamast við að semja og æfa svokallaða "sketsa" eða stutta leikþætti.
Ekki nóg með það, það var, áður en við var litið, búið að panta dagskrá, með þessum þáttum til flutnings að aðventuskemmtun eldri borgara, sem síðan féll niður vegna, jú nó.  
Ekki nóg með það, við vorum beðin að taka þátt í einhverju óútskýranlegu verkefni með nemendum í framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. 

Ég neita því ekki, að ég ætlaði nú að humma það fram af mér, en lét svo til leiðast, enda tilheyri ég hópi fólks sem á frekar erfitt með að segja nei, alla jafna. 

Í gær fékk ég svo tölvupóst þess efnis, að eftir hádegið yrði svokallaður zoom  fundur okkar sem þarna gáfum kost á okkur til þessa verkefnis og umræddra nemenda í leiklistaráfanganum. Ég var tvístígandi, enda hafði ég aldrei áður notað þetta alkunna fyrirbæri, zoom. 
Það vildi svo (vel) til, að einmitt á þeim tíma sem þessi fundur átti að fara fram, var rafmagn tekið af blokkinni þar sem ég bý. "Jæja, þá verður ekkert úr þessu", hugsaði ég og var svo sem ekkert ósáttur. En svo uppgötvaði ég, að rafmagnsleysið væri ekki nægilega góð afsökun, þar sem síminn minn var óháður rafmagnni úr innstungum, með sitt 4G samband.

Jón Hreggviðsson - leiklestur
í lýðháskólanum 1975
Mér tókst að tengja mynd við þennan zoom  fund, en hljóðið lét standa á sér. Eftir talsvert fikt tókst mér að koma því á. Þarna var á myndinni saman kominn hópur af ungu fólki, með kennara sínum og fátt annað gert á fundinum en að ákveða, að nemendurnir myndu hafa samband við okkur, sem ætluðum að taka þátt. 

Svo leið nokkur stund, en þá fékk ég vinarbeiðni á Fb. frá ungri stúlku. Ég rannsaka alltaf vinabeiðnir á Fb. og það gerði ég einnig þessu sinni og komst að því að stúlkan átti fb-vin sameiginlegan með mér (sem reyndist svo vera faðir hennar og gamall nemandi minn). Ég tók því áhættuna. 

Skömmu síðar fékk ég hringingu á fb-og þar var komin þessi stúlka úr leiklistarhópnum ásamt félögum sínum.  Svo upphófst talsverð aðför að einkamálum mínum, en þar sem ég þykist ekki hafa margt að fela, gekk það allt vel fyrir sig, að mínu mati. Eftir spurningaflóð um hagi mína og nokkrar upplýsingar um hvað í þessu fælist, stóð ég upp með þá hugmynd að ég myndi þarna verða einhverskonar miðpunktur í listrænum gjörningi. Mín persóna yrði aðalumfjöllunarefni þess unga fólks sem þarna blasti við mér í gegnum símann. Ég tel að þarna verði þáttaröðin "Maður er nefndur" sett upp í nútíma uppfærslu, sem sérstakri áherslu á mig, í listrænnni (leiklistarlega) framsetningu. 

Hornakórall eftir Odd Björnsson í ML
í hlutverki Lofts, líklega 1973

Það var bara merkilegt fólk, sem var tekið tali í þessum viðtalsþáttum, sem voru sýndir á RUV í kringum aldamótin. Ég ylja mér við þá tilhugsun, að þarna fái ég loksins að komast í einhverskonar kastljós. Samt er fjarri mér að óska þess að unga fólkið í leiklistaráfangum upplifi einhverja pressu frá mér í þessu efni. Hlakka bara til að sjá einhverskonar úttekt á sjálfum mér - eða þannig.

Það er rétt að nefna það að viðmælendur mínir voru einkar kurteisir, líflegir og óþvingaðir og samtalið við þau fór vel í mig.

Það er bara gaman að svona löguðu 😎

21 nóvember, 2021

Tengsl vepju og myndaleiks

Vepja (mynd Alex Máni)
 Þann 15. febrúar, 1913, birtist í blaðinu Suðurland, sem gefið var úr 1910-1917, bréf frá Páli nokkrum Jónssyni, um fugla sem hann hafði séð í Laugarási. Í sama blaði er birt svar P. Nielsen við spurningu Páls. Þarna kemur einnig við sögu einn þeirra einstaklinga sem birst hafa í myndaleik í fb-hópnum Laugarás - þorpið í skóginum.

Hér er bréf Páls og svar P. Nielsen.  Fyrir neðan er svo gerð grein fyrir persónum sem við sögu koma:


Hvaða fugl?

 Þann 15. þ. m. átti ág erindi að Laugarási. Sá ég þá einkennilegan fugl setja á hveramosanum. Hann flaug frá mér í svo sem 10 faðma fjarlægð. Hann var hvítur á bringu, dökkur á bak, með uppmjóan kamb upp úr hnakkanum, alt að því 3-4 þuml. háan. Vængirnir sýndust mér vera jafnbreiðir fram: margar flugfjaðrir jafnlangar. Að fluglagi og flughraða var hann einna líkastur tjaldinum. En ekki var hann eins stór og tjaldur, að minsta kosti ekki búkurinn. Nákvæmlega get ég ekki lýst honum. Ég var á svo hraðri ferð, að ég gat ekki gefið mér tíma til að veita honum frekara athygli.

Þann 17. þ. m. kom Guðmundur Ófeigsson[1] í Fjalli til mín, — mjög vel greindur og gætinn maður, er hafði fyrir 10 árum dvalið 5 ár í Laugarási. Ég spurði hann, hvort hann hefði ekki á þeim árum séð einkennilega fugla. Hann sagðist hafa séð þá 3 eða 4 sinnum á þeim tíma. Lýsti hann þeim með hvitri bringu og Ijósdökku baki, á stærð milli stelks og tjalds, og að öllu leyti svo, að ég heyrði að hér var um sömu fuglategund að ræða og ég hafði séð. Hann sá þá einusinni í hveralæknum (synda eða vaða?). En í honum er að jafnaði ekki nema 30-40 stiga hiti. Rödd þeirra hafði hann heyrt. Hún líktist einna helzt veiku urghljóði.

Þann 18. þ. m. (í gær) fór ég aftur að Laugarási til að forvitnast um fuglinn. Þá sá ég hann þar ekki. Ég spurði fólkið í Laugarási, hvort það hefði séð þesskonar fugla. Það hafði heyrt til þeirra undanfarna daga, en ekki veitt þeim frekar eftirtekt. Þó sagði vinnumaður, að hann hefði séð þá koma 2 saman framan yfir Hvítá fyrir fám dögum. Lýsing hans var hin sama og hjá mér að öðru en því, að hann sagði þá hafa hvítan kraga um hálsinn. — Gísli bóndi[2], sem nú hefir búið 6 ár í Laugarási, veit ekki til, að slíkir fuglar hafi komið þangað á þeim árum, fyr en nú. En hann hét að veita þeim eftirtekt og láta mig vita, ef hann sæi þá eftirleiðis.

Það er einkum einkennilegt við þessa fugla, að þeir eru svo sjaldséðir hér. Vera má raunar að þeir komi oftar en eftir er tekið, Maður verður að hafa allan hugann við nauðsynjar daglega lífsins, en leiða hjá sér alt er fjær liggur, og má ekki ámæla manni fyrir það. En þar eð þessi fuglateguhd er ókunn hér, mundi mörgum þykja gott að „Suðurland“ útvegaði upplýsingar um hana: Hvað hún heitir og hvar hún á heima og hvernig hún hagar ferðum sínum o. fl. o. fl.

Iðu 19. janúarm. 1913

Páll Jónsson. [3]

-------------

Mér hefir verið gefinn kostur á að lesa framanritaða lýsingu á fugli þessum, áður en hún var send „Suðurlandi“, - og held ég að hér sé ekki um annan fugl að ræða en þann, sem á dönsku nefnist „Vibe“, á latínu „Vanellus cristatus" og þýðir „cristatus“fugl, sem hefir kamb eða fjaðratopp á höfði. Á íslenzku nefnist hann „ísakráka“, og bendir það á, að fuglinn oftast hefir sést hér að vetrinum til, eins og líka hefir átt sér stað núna. Annað íslenzkt nafn er „Vepja“, sem auðsjáanlega er búið til úr „Vibe“, og er líklegt að Jónas Hallgrímsson á sínum tíma hafi gert það.

Ísakrákan er mjög fallegur fugl. Ennið og fjaðrakamburinn sem beygist dálítið fram, framhálsinn, efri partur brjóstsins og vængjafjaðrirnar, er alt gljáandi svart; á bakinu eru fjaðrirnar dökkgrænar með purpurag!já, bringu- og hálshliðarnar hvítar; nefið svart og fæturnir dökkrauðleitir. Á vetrin er framhálsinn hvítleitur og bakfjaðrirnar gulkantaðar. Lengdin er kringum 13".

Fuglategund þessi á heima í Norðurafríku, Suðurasíu og allri Evrópu, en verpir ekki norðar en 60° og því ekki á Íslandi. Í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, en þó einkum á Hollandi, er fugl þessi mjög algengur og kemur fyrstur allra farfugla á vorin til þess að verpa. Snemma í apríl verpir hann 4 eggjum á stærð við lóuegg og mjög lík þeim; þau eru mesta sælgæti, ennþá bragðbetri en Kríuegg, en aftur á móti er kjötið ekki gott.

Fæðan er helzt maðkur og skorkvikindi eins og hjá mörgum öðrum vaðfuglum, ennfremur einstaka jurtategund ef þröngt er í búi.

Þótt ísakrákan eigi ekki heima hér á landi, flækist hún þó ekki svo sjaldan hingað, helzt á haustin og vetrin. Haustið 1875 sáust nokkrir fuglar í Grímsnesinu og haustið 1876 var einn (karlfugl) skotinn í Mosvallahreppi í Ísafjarðarsýslu. 1. jan. 1877 var einn (kvenfugl) tekinn lifandi í heygarði hér á Eyrarbakka, mjög aðfram kominn af sulti og kulda, og var hann drepinn samdægurs. Í maganum var ekkert annað en fáeinir smásteinar. Snemma í janúar 1879 kom hann í stórhópum og hélt sér um tíma við sjó hér sunnanlands. 2. febr. 1882 sáust 5 í Ölfusinu og var einn skotinn. 7. des. 1889 var einn (kvenfugl) skotinn hér við Eyrarbakka. Ennfremur var einn skotinn í Ölfusinu 17. febr. 1895 og seint í febrúar s. á. sáust þrír við Eyrarbakka. Áttunda marz 1901 sást einn við Stokkseyri og í miðjum desember s. á., hélt lítill hópur til við Gamlahraun. 6. marz 1907 var ungur karlfugl skotinn við Eyrarbakka og 17. jan. 1912 fanst einn með brotinn væng hér í þorpinu, hefir að líkindum flogið á símaþræðina. Norðanlands sést ísakrákan ein staka sinnum í janúar og febrúar og hefir etatsráð Havsteen skotið hana 1877, 78 og 79.

P. Nielsen[4]. 


[1]

Guðmundur Ófeigsson

Árið 1902 voru komin í Laugarás: Guðmundur Ófeigsson (1865-1943) og kona hans Guðríður Erlingsdóttir (1861-1936) með börn sín: Jóhann (1896-1904), Sigríði (1897-1980), sem varð síðar húsfreyja í Núpstúni í Hrunamannahreppi, Jón Erling (1899-1985), sem varð síðar bóndi á Galtastöðum og Vilborgu Þuríði (1900-1987), sem varð síðar húsfreyja í Reykjavík.
Guðmundur og Guðríður höfðu þá verið á Fjalli á Skeiðum en síðar bjuggu þau á Galtastöðum í Gaulverjabæjarhreppi. Þau voru í Laugarási til ársins til 1908 og Guðmundur var þar bóndi fyrstu tvö árin, en síðan bar hann titilinn húsmaður. (laugaras.is) 


[2]

Gísli og Sigríður (mynd úr Litla Bergþór)

Árið 1907 voru komin í Laugarás Gísli Guðmundsson (1876-1959) bóndi og Sigríður Ingvarsdóttir (1882-1972) kona hans með soninn Erlend (1907-1997).
Annað barn þeirra Gísla og Sigríðar fæddist í Laugarási árið 1909 og hlaut nafnið Jónína Þorbjörg (1909-1979).
Gísli og Sigríður fluttu úr Laugarási 1916 í Úthlíð og Hrauntún í Bisk.
Erlendur varð bóndi í Úthlíð og sjómaður og síðar bóndi í Dalsmynni. Hann eignaðist Hrein, Eyvind, Örn, Sigrúnu og Eddu með konu sinni Guðrúnu Guðmundsdóttur.
Jónína varð húsfreyja í Úthlíð, og eignaðist Gísla, Ingibjörgu, Björn, Sigrúnu, Kristínu, Jón Hilmar og Baldur, með eignmanni sínum Sigurði Tómasi Jónssyni. (laugaras.is) 

[3]

Páll Jónsson

Páll var “vegagjörðamaður” og sá um uppsetningu dragferjunnar á Hvítá hjá Iðu árið 1903.
Skömmu eftir að ferjan hafði verið sett upp, drukknaði bóndinn og ferjumaðurinn Runólfur Bjarnason við notkun hennar. Frá þessu slysi var sagt í Þjóðólfi og Skúli Sæland, sagnfræðingur skrifaði grein í Litla Bergþór 1. tbl. og 2. tbl, 2018.
Eftir lát Runólfs hélt ekkjan, Guðrún Markúsdóttir áfram búskap á Iðu og Páll Jónsson, sem hafði sett upp dragferjuna, kom til hennar sem fyrirvinna (starfsheiti í sóknarmannatali). (laugaras.is)


 [4]

P. Nielsen

Peter Nielsen (fæddur 27. febrúar 1844 í Ringkøbing, dáinn 9. maí 1931 í Reykjavík) var veðurathugunarmaður í Húsinu frá 1880 til 1911 og faktor (verslunarstjóri) við dönsku verslunina á Eyrarbakka. Hann ástundaði náttúrufræðilegar athuganir víðsvegar um Suðurland og var frumkvöðull í fuglavernd á Íslandi. Safn uppstoppaðra íslenskra spörfugla gaf hann barnaskólanum á Eyrarbakka. (Wikipedia)

 

Costa Rica (17) Norður í svalann - lok

Frásögnin hefst  hér FRAMHALD AF  ÞESSU -------------------------------------- Að morgni mánudagsins 24. nóvember lá fyrir, eins og alltaf v...