04 nóvember, 2008

Reitt fólk

Á þessum degi hef ég hitt fólk sem endranær, sem er fjarri því að vera ánægt með stöðu mála í þessu samfélagi. Reiðin hefur verið að gerjast með þessari þjóð, sem er þekkt af því að láta ekki tilfinningar sínar í ljós í umtalsverðum mæli. Nú virðist hún vera að brjótast fram af síauknum þunga með ofyrirsjáanlegum afleiðingum. Mér þætti það í meira lagi undarlegt ef það tekst, þessu sinni, að þagga niður í íbúum þessa lands.

Ég get ekki neitað því að mín reiði er einnig farin að láta á sér kræla, en mér finnst ekki augljóst hvert á að beina henni. Um þessar mundir hamast gerendur í þessum óþverramálum við að benda hver á annan. Hver og einn hefur hag af því að ljóstra upp um skuggalegt athæfi hinna.

Það er smám saman að koma í ljós að tengsl milli fólks í fjármálageiranum, stjórnmálum og löggæslu í þessu landi eru miklu meiri en maður hefur ímyndað sér. Þegar það liggur fyrir eykst enn vantraust á allt það sem gert er til að komast að hinu sanna um aðdragandanum að þessum hörmungum.

Mér sýnist að það verði ekki friður í þessu landi fyrr en erlendir aðilar verða settir í að hreinsa þennan flór. Fólkið verður vonandi ekki sátt fyrr en það hefur verið gert.


Það var milt veður í dag. Rigningin lamdi á þökin og jörð skalf. Obama fór að kjósa, en Makkinn er ekki búinn ennþá.  Allt silast þetta einhvernveginn áfram.
Fólkið ljær reiðinni vængi.

1 ummæli:

  1. Sem betur fer skilur hirðkveðillinn ekki fólk, sem kemur ítrekað fram fyrir alþjóð með hrópleg ósannindi, undanbrögð og svo hálfsannleika - væntanlega í skjóli þess að pöpullinn sé svo heimskur. - (eina ferðina enn!Fíbbblin!).

    Og "ættræknin"? Ja, enn blómstrar hún... dyggðin sú. Þú hefur lög að mæla; hér þarf að hreinsa flórinn, þótt sennilegt sé að nokkrar nautheimskar kýr fái að halda sínum básum; allavega í bili.
    *********************************
    Legg ég nú til að leitað verði til Nýja_Sjálands (er það ekki hvað lengst frá íslenskum ættum?) eftir þremur einstaklingum með þekkingu á fjármálaveröldinni og fallit-meðhöndlan, viðamikla reynslu, fætur á jörðinni og menntun (ekki bar próf; ég sagði menntun).

    Þessir einstaklingar verða svo flórskafa íslensku þjóðarinnar; sjálfstýrð, farandisk í gang hvenær sem er og á hvaða hátt sem er; sumsé random - svo nútímafólk skilji.

    Auðvitað munu einhverjir embættismenn lafa á sínum stólum - allavega í byrjun. En við þurfum að fá sköfuna strax.

    Hún flórinn mun skafa og skafa
    (hvar Skjalda og Huppa enn lafa)
    Þær skilj' ekki baun
    en skraf' um - á laun
    að skafan hún "þekkt' ekki afa"!

    (Hvernig komst hún þá að?)

    Bloggskapur um "frændsemi og ættrækni" - og hrein borð, takk.

    Pjé ess:
    Ég óska veröldinni til hamingju með að þurfa ekki lengur að hafa hrætt, óupplýst og árásargjarnt leikskólabarn í Hvíta húsinu þarna í henni Ammríku.

    H.Ág.

    SvaraEyða

Sæludagar í sandkassanum (12 - LOK)

Framhald af þessu Þannig er það víst alltaf, að það sem byrjar á annað borð, því lýkur á endanum. Þannig var það einnig með þessa ferð til D...