Nú, ég er orðinn svo leiður á þessum myndum, að ég ákvað að gera bara mína eigin, þannig að hún myndi dreifast um heiminn, deilast manna á meðal eins og vindurinn.
En, nei, aldeilis ekki. Fólk fór að ræða myndina og mögulega fá út úr henni eitthvað sem það átti ekki að sjá.
Þetta var bara mynd af Heklu, sem var tekin frá Laugarási á fögrum sumardegi.
Ekkert annað.
Ef fólk sá t.d. fjall á myndinni, hefði það átt að deila henni áfram, ef allt væri eins og venja er með myndir af þessu tagi.
Á myndinni er ekkert falið.
Hún er bara það sem hún er.
Það er engin ástæða fyrir því að bleiki liturinn varð fyrir valinnu.
Það er engin ástæða fyrir því að ég valdi töluna 733.
Þessi myndbirting átti bara að vera svona létt sumargrín hjá mér, og jafnfram gagnrýni á þessar smelligildrur.
Ég get ekki látið hjá líða að biðja þau ykkar afsökunar, sem reynduð að sjá eitthvað annað en fjall út úr þessri mynd. Ég skal ekki gera þetta aftur.
Njótið dagsins. Megi smelligildrur auðga líf okkar áfram.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli