02 júlí, 2011

Varptíminn er líklega liðinn, en......

....það er nú samt hægt að líta svo á, ef maður er sæmilega víðsýnn, að það sé alltaf réttur tími fyrir fuglahús.

Hér var fjallað um það þegar efri hlutinn á heldur háu grénitré var fjarlægður fyrr í vor. Síðan hefur það sem eftir er af trjástofninum beðið eftir einhverju viðeigandi hlutverki og í því sambandi var því meira að segja varpað fram af nokkurri alvöru að ÉG tæki mig til út byggi til úr stofninum svokallaða TÓTEM- súlu, sambærilega við þær sem frumbyggjar Ameríku eru þekktir fyrir, en eins og þá sem Gunni Tomm skar út fyrir allmörgum árum og sem stendur niðri við veg.

Ekki hefur mér enn tekist að koma þessari hugmynd nægilega vel fyrir í hugskoti mínu til að hefjast handa við trjáskurðinn, en hugur fD hélt áfram að vinna að lausn trjástofnsmálsins.

Þannig háttar til hjá fjölmörgum fjölskyldum víða um land, að hluti af grunnskólanámi barnanna felst í því að búa ýmislegt til, því það er sannarlega mikilvægt að nemendur reyni fyrir sér við handverk ekki síður en bóklestur.  Svona háttaði einnig til hér. Ýmsir munir urðu til á grunnskólaárum fjögurra barna. Ekki ímynda ég mér annað en þessir hlutir hafi einhvernveginn orðið kyrrir hér í Kvistholti þegar ungarnir flugu úr hreiðrinu (það eru margir hlutir til í Kvistholti).

Þannig er það með fuglahúsið.


Hér er á ferðinni heilmikil völundarsmíð úr vatnsheldum krossviði, opnanlegu þaki, og sérlega haganlega hugsaðri þakfestingu, Þá er húsið málað með gullbronsi. Þar sem eigandi hússins kaus að flytja þetta fína fuglahús ekki með sér til höfuðborgarinnar, Perth, Oslóar og Álaborgar, til að veita fuglum þessara staða á jarðarkringlunni skjól, þá ákváðu íbúar geymslusvæðisins í Kvistholti að nýta húsið til að efla og styrkja fuglasöng og fjaðrafok í næsta nágrenni, næsta vor.




Að öðru leyti bíður afskorinn trjástofninn þess að hugmynd að umbreytingu í tótemsúlu ljósti niður í höfuð tilvonandi útskurðarmeistarans.

1 ummæli:

  1. Í Kvistholti er ugglaust gott að kúra
    kannski þrestir fái sér þar dúra
    en heimsborgarinn Páll er hvergi banginn
    og hyggst nú reisa súlu - já, á langinn;)

    Tótem heitir talsvert fögur smíði
    táknmynd fyrir næstum horfna lýði
    Dröfn mun skreyta, -skilvirk þessi vænan-
    og skelfing verður falleg efsta hænan.

    Hirðkveðill hlakkar til að fá sér blund í litla hosilóinu og fylgjast svo þaðan með gerð Tótem-súlunnar;)- setjast efst á hana að verki loknu;)!

    SvaraEyða

Hin tápmiklu 12 og þjófagengið (síðari hluti)

  Framhald af þessu Þar sem hin tápmiklu 12 stóðu fyrir utan flóttaherbergið, var óhjákvæmilegt að hugurinn beindist að verkefninu framundan...