Ég hef áður vikið lítillega að því að fyrir skömmu sótti ég námskeið í skyndihjálp ásamt samstarfsmönnum mínum. Leiðbeinandinn var afar hress og skemmtileg kona frá Árnesingadeild Rauða krossins - hélt athygli viðstaddra óskiptri í ríflega fjóra klukkutíma.
Meðal þess sem fjallað var um voru viðbrögð við því þegar stendur í einhverjum í nánasta umhverfi manns. Leiðbeinandinn lýsti helstu aðferðum sé nýttust vel við fólk á ýmsum aldri og í ólíkar aðstæður. Meðal þeirra aðferða sem fjallað var um var svokölluð Heimlich-aðferð, sem beitt er eins og sjá má á skýringarmyndinni sem fylgir hér. Leiðbeinandinn greindi frá hvernig henni skal beitt á mismunandi aldursskeiðum og eftir mismunandi ásigkomulagi þeirra sem stæði í. Einn var sá hópur sem mun þurfa að greina lítllega áður en gripið er til Heimlich-aðferðarinnar, en það eru vanfærar konur. Þá þarf fyrst að athuga hvort viðkomandi er (hér vísast til fyrirsagnarinnar). Þó svo einhverjir kunni að halda því fram, að málfarið sem leiðbeinandinn notaði, sé í óheflaðri kantinum, þá verður því varla á móti mælt, að það er afar myndrænt og athyglisvekjandi.
Ég rétt sé sjálfan mig framkvæma slíka greiningu við þessar aðstæður. Hvar byrjar t.d. brókin? Það hlýtur að fara eftir ýmsu, sem ég ætla ekki einu sinni að reyna að fabúlera um. Það verður hver að gera fyrir sig.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hin tápmiklu 12 og þjófagengið (síðari hluti)
Framhald af þessu Þar sem hin tápmiklu 12 stóðu fyrir utan flóttaherbergið, var óhjákvæmilegt að hugurinn beindist að verkefninu framundan...
-
Heilsugæslustöðin í Laugarási á vígsludegi 1997 (mynd: Jónas Yngvi Ásgrímsson) Ég hefði óskað þess, að fyrstu dagar nýs árs yrðu ánægjulegri...
-
Oft stendur maður frammi fyrir því að taka afstöðu til álitamála. Þau geta verið bæði smá og stór. Þessi smáu, þar sem ekki skiptir svo sem...
-
Kortið sýnir staðsetningu þéttbýliskjarna í uppsveitum Árnessýslu. Ég vil nú ganga svo langt að halda því fram, að sú staða sem nú er komin ...
Nú er lag í legi
SvaraEyðaá ljúfum föstudegi
kanna brók og kætast
hvað skal þar nú mætast?
Heimlich karlinn kemur
kúnstir margar fremur
kreistir börn úr kviði
-á koju trú' ég miði.
Barnið litla bljúga
brátt fer því að trúa
að Heimlich ei hér henti
- og harkalega lenti!
Hirðkveðli finnur hjá sér ómótstæðilega hvöt til að tjá sig um hina nýju fæðingartækni Heimlichs....
Ég hafði ekki hugsað þetta svona - það á eitthvað að fara upp, með beitingu þessarar aðferðar - en ekki niður. Nú mun ég líklega aldrei nota hana.
SvaraEyðaKæri hP,
SvaraEyðaég veit að "eitthvað" á að fara upp. Bendi engu að síður á að miðað við ófríska konu væri ég dauðhræddur um að "eitthvaðið" færi frekar niður...
Hirðkveðill Kvistholts- glottandi;)